5.11.2007 | 11:16
Nýr her til suðurnesja
Góðan daginn og velkomin á fætur
Þá er komin ný vinnuvika og helgin að baki Er reyndar bara ansi þreytt eftir hvíldina sem átti að vera svo mikil og góð hjá mér. En það er nú eins og oft áður alltaf finnur maður sér eitthvað að gera þó svo að ekkert liggi fyrir. En hvað með það. Fór í smá breytingar hérna hjá mér í stofunni færði til húsgögn. Við fengum gefins skenk sem foreldrar Gústa áttu og bróðir hans fékk eftir að mamma þeirra lést En er komin hingað til okkar og príðir stofuna vel. Við þessar breytingar og smá tilfærslu virðist sem stofan hafi stækkað og fermetrarnir fleiri
Karlarnir mínir voru svo að vinna á laugardaginn allir nema Ævar sem var í ferðalagi með FS og skemmti sér víst vel. Við Aníta fórum svo að skoða jólamarkað sem er til húsa í Stapanum ekki eyddi ég þar neinu enda svo hagsýn húsmóðir að flestar jólagjafirnar er ég búin að föndra sjálf og bíða bara eftir að fá að gleðja aðra um jólin Við fórum nokkrir vinnufélagar að föndra í Röstinni en þar var á sínum tíma verbúðir. Magga sem er ein af okkur leiðbeindi og sagði til enda vön kona þar á ferð og var þetta hin besta skemmtun fyrir okkur mikið gert og mikið hlegið
En svo í seinnipartin í gær brugðum við okkur hjónin á gospel tónleika sem haldnir voru á gamla varnarsvæðinu í boði Hjálpræðishersins. Og var hin ágætasta skemmtun ekki var margt um mannin þar en nokkrir sáu sér fært að mæta fyrir utan fólkið sem er í hernum meðal annars var þar fyrrum skólabróðir minn úr Glerárskóla sem er séra hérna í Keflavík. Hjálpræðisherinn er sem sagt að halda innreið sína á gamla varnarsvæið og sem sagt nýr her að koma til suðurnesja
Hef reyndar lúmskt gaman að fara svona á samkomur hjá hinum ýmsu félögum og sjá flóruna. Allt hefur þetta reyndar sama tilganginn. Reyndi sjálf þegar ég var yngri og villtari að vera í svona trúfélagi lærði margt á þeim tíma og fannst gaman Sé ekki eftir því í dag að hafa prufað það. Annars gengur svo lífið sinn vanagang hérna frost á fróni Bíð svo spennt eftir að heyra um samtalaði við granna á blogginu hjá stórabró. Á reyndar fullt af grönnum sjálf eins og gefur að skilja en þeir eru nú flestir pólskir svo ég skil þá takmarkað get kannski sagt sögur seinna ef mér tekst að skilja þá Kveð að sinni. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
,,sing glory, glory hallelúja....." bara kvitta.
Páll Jóhannesson, 5.11.2007 kl. 23:24
Kom, kom, kom í Frelsisherinn getið þið nú sungið núna. Bara að kvitta eins og Palli.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 7.11.2007 kl. 15:48
Hæhæ ég segi nú bara glory hallelúja en alltaf gaman að lesa bloggið þitt, þú ert góður penni en bið að heilsa í bili og sjáumst fljótlega en maður er í vinnuni og ákvað að kíkja inn á síðuna þína til að dreyfa huganum
Kveðja Villa
Villa (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.