12.11.2007 | 10:35
Að sigra heiminn
Góðan daginn og velkomin á fætur
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekinsglegum svip og taka í nefið. En þótt þú tapir það gerir ekkert til því það var nefnilega vitlaust gefið Pæling?
Hvenær sigrar maður og hvenær tapar maður? Já þegar stórt er spurt er oft lítið um svör mér datt þetta í hug núna í morgunsárið Annars er mér ekki tamt að ætla að sigra heiminn enda engin manneskja til þess
Var að tala við unglingsstrák sem er í framhaldsskóla og spurði eins og flestir hvað ætlar þú svo að læra og verða þegar þú ert orðin stór eða stærri Hann svaraði ég veit það ekki. Ha veistu ekki hvað þú vilt læra spurði ég? Nei ég get bara ekki ákveðið mig núna og veit ekki hvað ég vil enda ekki nema rétt orðin 17 ára. Hvað meinar þú spurði ég. Hann svaraði vissir þú þegar þú varst á mínum aldri hvað þú vildir læra og starfa við? Nei ég vissi það ekki enda fannst mér þá lífið vera rétt að byrja og óþarfi að spá í svona hluti þegar ég var rétt komin með bílpróf og hafði nóg að gera við að rúnta og hafa gaman Nákvæmlega þannig. Jæja við héldum áfram að tala um lífið og tilveruna og kom mér svo mikið á óvart. Þegar maður er sjálfur orðin foreldri og fer að spyrja börin sín eða aðra gleymir maður oft að vorum við viss á þessum aldri sjálf. Veit alla vega með mig ekki vissi ég það fyrr en mörgum árum síðar og nokkrum börnum síðar Jæja en svo sagði kauði svo lítið við mig sem kom mér verulega á óvart hann sagði ég veit það hérna inni hvað ég vil gera en ég kem því bara ekki frá mér það er svo langt að sækja það. Mig langar að tala við sálfræðing eða félagsfræðing til að fá leiðbeiningar um hvernig ég nálgast sjálfan mig og finn hvað ég vil gera, Tala við einhvern sem ekki er tengdur mér og hlustar á að ég er enn ungur og óreyndur veit ekki allt og skil ekki allt Úff ekki hafði ég hugmynd um að við erum kannski að þrýsta of mikið á okkar börn og gleymum kannski að þau eru jú rétt að byrja lífið og svo mörg ár framundan ef guð og gæfan leyfir. Vona bara að vinur minn þessi ungi og efnilegi drengur finni sjálfan sig og er stolt af því að hann getur viðurkennt að kannski þurfi hann leiðsögn við val sitt í framtíðnni.
Ég bara varð að segja frá þessu vildi óska þess að mér hefði dottið slíkt í hug þegar ég var á þessum aldri og vissi ekki frekar en svo margir aðrir hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór Veit það vonandi núna. Læt þessum hugrenningum lokið og kveð. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:38 | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 36409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þú segir það. Ég mundi segja þessum unga manni að vera duglegum að læra og klára framhaldsskólann. Námið mun skila sér og gera honum auðveldara, þegar hann hefur fundið sína hillu í lífinu. Sumir byrja á einhverju og færa sig svo til. Sem dæmi : Eina þekkti ég sem lærði matreiðslu og fór síðan í Fóstrunám og einn í sálfræði í smíðar o.s. fr. Gangi honum bara vel. Kv.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.11.2007 kl. 21:12
Það er alltaf gaman að heyra svona sögur, hversu þroskaðir oft þessir unglingar eru ( en ég er nú enn hálfgerður unglingur ) Sammála ömmu með það að hann mun vita seinna meir hvað hann vill í lífinu, fólk sem er oft komið yfir fimmtugt eða sextugt er rétt að finna sitt áhugamál þá
Annars hafið það sem allra best og bestu kveðjur héðan að norðan
Dagga (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 16:17
Mikið er ég nú sammála ykkur..... ég bíð enn eftir því að verða ,,stór" til þess að geta áttað mig á því hvað ég ætla verða þegar ég verð stór.
e.s. í þessu fína ljóði eftir Stein Steinnar vantar á eftir þar sem er sagt .. og taka í nefið...." hér á að koma ,,og allt með glöðu geði er gjarnan sett að veði" En þótt þú..... ogsfr..
Páll Jóhannesson, 16.11.2007 kl. 16:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.