19.11.2007 | 11:16
Nútíminn
Góðan daginn og velkomin á fætur
Morgun stund gefur gull í mund Fór hérna út í morgun og sá þá gamlan mann sem ég hitti í sumar hérna í okkar listigarði sem ekki er langt frá mér. Þessi gamli maður settist við hlið mér og tók að spjalla um lífið og tilveruna Hann er ekki lengur að vinna komin á aldur en fer alltaf langar gönguferðir á daginn og týnir þá upp dósir og flöskur sem hann sér liggja á viðavangi um allt Leggur svo afraksturinn inn á bankabók og notar til að gefa barnabörnum sínum ýmsar gjafir Hann hefur verið að semja ljóð og fór með nokkur fyrir mig. Ivan var með mér í vagninum sínum og gamli maðurinn leit á hann fannst hann ósköp fallegur drengur Sagði svo við mig vonandi á þessi drengur eftir að spjara sig í lífinu og halda sig fjarri ósóma og vandræðum. Tjáði mér að margur ungur maðurinn færi því miður skakka leið og lenti í viðjum eiturlyfja og glæpa Já svona er víst nútímnn sagði hann hérna á árum áður drukku menn og slógust og í mesta falli kýldu tennur í viðkomandi en ekki meira en alveg nóg. Já nútíminn getur tekið á sig ýmsar myndir. Til dæmis eitt þvottavélin mín fór í verkfall um helgina og ég svo sniðug að taka með mér þvott í vinnuna. Ekki eru allir svo heppnir maður verður hálf vænglaus ef eitthvað af nútíma þægindunum bregst okkur En sem betur fer hefur hann létt okkur lífið til muna og gert þægilegar. Alla vega þau tæki og tól sem til eru að létta okkur vinnuna og voru ekki til í "gamla" daga.
Svo fer að koma að árlegu jólaföndri og laufabrauðsgerð hjá okkur konunum en við erum nokkrar sem hittumst og eigum góðar stundir saman höfum gert þetta í mörg ár og alltaf jafn gaman Nokkrir dagar þangað til að "litla" barnið mitt verði 16 ára og Krístin Rae verði 1 árs Mikið er nú tíminn fljótur að líða finnst svo stutt síðan að hún fæddist og við vorum með allan okkar hug hjá þessari hetju sem mikið hefur verðið lagt á. Hún er nú flutt ásamt bróðir sínum og foreldrum til Las Vegas. Verða þar í að minnsta kosti tvö ár. Jæja læt nú þetta verða gott í bili og kveð. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:49 | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég dáist að þessum gamla manni sem þú hittir og að hann skuli vera svona duglegur að ganga úti. En þetta með dósirnar og flöskurnar sem hann tínir. Láttu þér ekki detta í hug að ég fari að tína flöskur til að ná mér í pening fyrir gjafir! handa afkomendunum mínum þeir eru svo margir og staðsetningar tæki svo dýr. Er það ekki vinsælasta jólagjöfin í ár?? kveðja.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 20.11.2007 kl. 12:00
hehe amma mín þetta er í allt í góðu, ég á ekki bíl þannig að þú þarft ekki að gefa mér staðsetningartæki bið að heilsa!
Ólöf Kristín (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 20:43
Sama hér amma mín, eigum eitt slíkt og skil ekki hvernig í ósköpunum það getur verið vinsælasta jólagjöfin í ár.... ekki myndi mig langa í eitt slíkt ef ég ætti það ekki til
Og Hrönn, alveg sammála með þessi "nútíma" tæki, maður getur eiginlega ekki verið án þeirra, t.d. ef talvan mín myndir hrynja þá er námið mitt farið út um þúfur og sama hér, ég gæti ekki verið án þvottavélar Svona er þetta bara, við erum orðin svo háð þessum tækjum
Kveðjur að norðan
dagga (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.