26.11.2007 | 12:31
Helgin að baki og ný vinnuvika
Góðan daginn og velkomin á fætur
Mikið hefur verið að gera hjá mér undanfarið. Fór í sumarbústaðarferð með fólkinu sem ég er að vinna hjá og með einum starfsfélaga mínum líka Mikið frost var en fallegt veður og umhverfið alveg æðislegt við vorum í Vaðnesi í bústað sem SFR á hann er bara hreint út sagt flottur Fórum svo á Selfoss og Eyrabakka i rauðahúsið þar sem fylgst var með fótboltaleik Ísland-Danmörk
Jæja en svo á laugardag kom Ragnar Þór frændi minn í heimsókn og var hér í nokkra klukkutíma og hafði gaman af
Ivan Freyr kom til ömmu og afa um hádegið og vorum við að passa hann á meðan mamma hans og pabbi fóru á jólahlaðborð og fengu svo að sofa út
En ekki fengu amman og afinn það enda fáum við að sofa nóg alla hina dagana
Gekk vel með hann og gaman að fá hann lánaðan og skila aftur
Er svo að fara í höfuðborgina að ná í Önnu systir hún ætlar að koma og vera hérna í sólarhring og ætlum við að fara í búðarráp og njóta þess að vera bara við engin börn í eftir dragi sem heimta hitt og þetta
Á morgun er svo stór dagur en þá verður prinsinn minn "litla" barnið okkar 16 ára og eitt ár í bílprófið hann fer að telja niður eftir morgundaginn okkur til mikillar"gleði" Svo má ekki gleyma prinsessuni okkar henni Krístínu litlu sem býr í Las Vegas en hún veður eins árs á morgun sama dag og frændi sinn
Mikið er nú tíminn fljótur að líða man vel eftir þessum degi fyrir ári síðan þegar beðið var eftir fæðingu Kristínar og mikið stress í gangi hérna hjá okkur með litlu hnátuna sem er að spjara sig vonum framar í dag
Til hamingju bæði tvö
með morgundaginn. Verð í frí í dag og morgun á svo asskoti góða vinnufélga og yfirmann sem leyfa mér að vera í frí svo ég geti eytt tíma með systur minni gott að vera ánægður með vinnuna sína
Bið svo að heilsa í bili. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
segi bara góða skemmtun og njótið ,
Til hamingju með soninn og barnabarnið
kv
Björg (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 20:46
Í dag er 27. nóv...... til hamingju með soninn.
Páll Jóhannesson, 27.11.2007 kl. 08:39
Til hamingju með soninn og barnabarnið, skilaðu kveðja frá okkur í Seljahlíð.
Vonandi eigið þið systurnar saman góðan dag. Kv.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.11.2007 kl. 11:45
Til hamingju með þau bæði
, kveðja frá okkur í Danaveldi
Margith (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 14:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.