24.4.2008 | 12:41
Sumardagurinn fyrsti
Góðan daginn og velkomin á fætur
Jæja þá er nú formlega komið sumar og allir að skella sér í stuttbuxurnar og sandalana og syngja í sól og sumaryl
Veturinn búinn og maður getur farið að hlakka til allra útlegurnar sem maður æltar í sofa úti grilla og gera allt á milli himins og jarðar
Alla vega hugsa ég um þetta allt en hvort að ég framkvæmi það svo er allt önnur ella
Hitti Ólöfu Kristínu frænku í gær en hún kom til Anítu í heimsókn og alltaf gaman að hitta hana takk fyrir Ólöf mín
Langar svo að óska öllum mínu vinum og ættingjum Gleðilegs sumars og takk fyrir veturinn
Annars veður þessi dagur örugglega ekki neitt öðruvísi en flestir allir hinir. Er að vinna eins og svo oft þegar sumir aðrir eru í frí
Að Ivani er það að frétta að brosið hans er nú komið aftur og litli vinurinn farinn að labba um eins og herforingi en úthaldið er reyndar ekki eins mikið og þarf að halda á honum er dálitið lítill ennþá í sér enda ekki skrítið
Hann fer á morgun að láta skipta um umbúðir hjá sér en pabbi hans er ansi mikill læknir eða hjúkka í sér og sér um að skipta og laga hjá stubbinum
Hann virðist samt en þá vera með einhverja verki vona bara að þetta fari nú allt vel
Jæja annars er svo sem ekki mikið að gerast hérna suður með sjó. Brosti reyndar mínu blíðasta við að lesa bloggið hjá Palla bróðir um þögnina hjá mér
Man eftir því þegar ég var lítil stelpa sem eru nokkur ár síðan þá sagði alla vega elsti bróðir minn og kannski hinn líka að ég væri eins og biluð grammafóns plata kynni ekki að þegja
Alla vega tókst mér það núna og ekki seinna vænna
Kannski er hægt að kenna gömlum hundi að sitja eftir allt. Kveð að sinni. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Já það er ekki spurning að hann Davor er með ummönnunar genin í lagi. Það sýndi sig best er við hjónin dvöldum þarna suðurfrá eftir slysið. Alla hans aðstoð og hjálp gleymist seint. Til er myndir því til sönnunar. Heilsan til allra héðan úr blíðvirðinu.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.4.2008 kl. 13:18
Hæ! Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Þetta með þögnina það hlýtur að hafa verið bara Dóri sem sagði þetta, ekki við Jói, við erum svo nærgætnir, ekki satt?
Gott að þetta er á réttri leið hjá Ívani litla.
Sumarkveðjur
Páll Jóhannesson, 24.4.2008 kl. 15:10
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!
Það var gaman að hitta ykkur öll, það verður vonandi ekki jafnlangt í næstu heimsókn:) Ég reikna nú með að kíkja þegar prófin eru búin:)
Ólöf (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 16:27
Gleðilegt sumar & takk fyrir veturinn
Gott að Ivan er farið að líða betur, kannski ekki skrítið að hann finni ennþá til enda brunasár frekar sársaukafull
Bestu kveðjur til ykkar allra frá okkur að norðan 
Dagbjört Pálsdóttir, 24.4.2008 kl. 16:57
Gleðilegt sumar og takk fyrir bloggveturinn
Vonandi verður litli kútur eins og nýr eftir svona bruna, það er svo hræðilega vont
. Hafðu góðan dag.
Unnur R. H., 25.4.2008 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.