6.5.2008 | 14:45
Vor í lofti
Góðan daginn góðir hálsar
Styttist nú óðum í að maður fari að munda stuttbuxurnar og setja upp sólgleraugun á nefið Ósköp lítið svo sem að frétt héðan úr höfuðstað suðurnesja manna nema bara allt í gúddý
Helgin var rólega eins og flestar aðrar helgar. Pössuðum Ivan Freyr á laugardagskvöldið og svaf hann eins og engill hjá okkur enda ekki við öðru að búast
Af honum er það annars að frétta að allt gengur nú betur og horfir vel með hann og brunasárin sem hann hlaut
Sárin eru loksins farin að gróa og fær náttúrulega ör eftir þetta allt en ekki þurfi ígræðslu sem betur fer
Vil þakka öllum fyrir góðan hug og hlýjar hugsanir handa honum og foreldrum hans
Á sunnudeginum þegar hann var farin heim til sín skruppum við hjónin á sýningu sem haldin var í Fífunni í Kópavogi bílar og sport mikið um flotta bíla jafnt nýja sem gamla. Hitti þar af einskærri tilviljun mann vinkonu minnar en þau búa í Borgarfirði hann var á ferð með syni þeirra og frænda sínum en eiginkonan var heima
Jæja en svo í dag vorum við að ganga frá í vinnuni ferð sem við erum að fara með íbúa sambýlisins til Danmerkur og förum við 2 júni og komum aftur heim 10 júni. Við eru 5 starfsmenn sem förum með 5 íbúum og ætlum að hafa gaman og njóta þess að vera öll saman Við fljúgum á Kaupmannahöfn og tökum þar bílaleigubíl sem við keyrum til Velje og þaðan er stutt í sumarhús sem við tókum á leigu. Farið verður víða og skoðað hlakkar okkur mikið til
Þetta er í fyrsta skipið mitt sem ég fer til Danmerkur svo það veður gaman
Sem sagt þriðja utanlandferðin mín á 8 mánuðum annað hvort í ökla eða eyra hjá mér
Reyndar kvíður drengjunum mínum aðeins fyrir þeir voru nefnilega skildir einir eftir með pabba sínum fyrir nokkrum árum síðan meðan ég skrapp til Þýskalands og voru ansi fegnir þegar mamma kom heim höfðu fengið lítið annað en hamborgara á meðan
Þeir eru nú orðir aðeins eldri í dag svo vonandi bjarga þeir sér frá þessu
Jæja en svo eitt af lokum vil ég óska Þórsurum til hamingju með nýja leikmannin þeirra í körfubolta en Guðmundur Jónsson sem kemur frá UMFN var að undirrita samning sinn við Þórsara. Þekki Gumma vel enda nágrannar til fjölda ára óska ég honum góðs gengis fyrir norðan. Læt þetta svo gott heita í bili og kveð. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtu þér konunglega í Danmerku frænka
Þú ert núna bara orðinn heimsborgaflakkari, ohh en það er svo gaman, lifi fyrir það að ferðast & myndi gera mikið meira af því ef ég vissi ekki aura minna tal
Bestu kveðjur að norðan 
Dagbjört Pálsdóttir, 6.5.2008 kl. 15:43
Hæ hæ, gott að heyra að alt er að batna hjá honum Ivani. Vejle eða Velje? Vejle er bara beint við hjá okkur, kannski man fær að sjá eitthvað til þíg
?
Margith Eysturtún, 6.5.2008 kl. 17:29
Já Margith það væri sko gaman ef við gætum kannki sést þó ekki væri nema smá stund
Þetta er beint við hjá ykkur á kortinu. Endilega sendu mér e-mail með símanúmerinu ykkar og adressuni ykkar. Mailið okkar er gusti58@simnet.is
Hrönn Jóhannesdóttir, 6.5.2008 kl. 17:42
Hey! Danmörk - þá missi ég af því að hitta þig þegar við fljúgum til Þýskalands... en annars vona ég svo sannarlega að þessi vinnuferð þín verði líka skemmtun.
Páll Jóhannesson, 6.5.2008 kl. 18:40
Hey Palli þið fáið samt gistingu hjá Gústa getið haldið honum á snakki og minnt hann á að vera búin að baka og bóna þegar frúin kemur heim
Sjáumst kannski áður hver veit
Hrönn Jóhannesdóttir, 6.5.2008 kl. 21:22
Sæl Hrönn .Gaman fyrir þig að skreppa í Danaveldi og vonandi hittist þið Fúsi og fjölskylda. Reyndu að koma karlinum á námskeið í matargerð. Það nær engri átt að kunni ekki að matreiða hollan og góðan mat.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 7.5.2008 kl. 14:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.