27.6.2008 | 11:28
Óheppin eða?
Góðan daginn og velkomin á fætur
Stundum þegar fólk er að tala saman þá koma oft umræður um skondna hluti fram Jafnvel hlutir sem eru alveg út úr kú og ekki í neinu samræmi við umræðunar. Átti samtal um daginn við konu eina og út frá allt öðru tali barst umræðan að annari konu. Hún greyjið er svo óheppin í karlamálum
Sagði viðmælandi minn. Nú af hverju? Er hún eitthvað óheppnari en aðrir? Kaus hún sér ekki þetta sjálf. Fólk hér á landi giftist að ég held sjálfviljugt tel sjaldan að um nauðungar hjónabönd sé að ræða
Kannski er bara þannig að maður áttar sig ekki strax á því að vera hrifin af einhverjum endist kannski ekki alla ævi og ástin er ekki til staðar en að vera skotin er annað en að vera ástfangin segi ég alla vega
Þessi kona sem talað var um er búin að vera í nokkrum samböndum og núna er hún að ég held hamingjusöm og finnst lífið vera dásamlegt
En ég þekki konur og karla sem hafa veriið í samböndum og jafnvel gifst oftar ein einu sinni og hvað með það? Ertu eitthvað verri manneskja fyirir vikið? Nei ég held ekki. Það er ekki öllum gefin sú gæfa að finna rétta makann strax og eiga hann einan fyrir lífsförunaut. Mín skoðun er sú hvort að þú finnir þér maka eða ekki þá getur maður alveg verið hamingjusamur þrátt fyrir allt
Að vera ánægður með lífið og tilveruna er svo mikils virði. Hvort sem þú gengur vegin einn/ein eða með örðum.
Jæja best að snúa sér að öðru. Hef gaman að því að vera úti í góðu veðri og sérstaklega á sumrin segi eins og Bubbi sumarið er tímin þegar kvenfólk springur út. Sammála þarna alla vega hvað mig varðar. Sumarið er sá tími sem mér finnst hvað skemmtilegastur langar að fara upp um fjöll og fyrnindi og koma helst ekki til byggða fyrr en vetur skellur á Væri sko til í að láta þann draum rætast einhverntíman. Það kostar ekki neitt að láta sig dreyma
Fara í burtu úr skarkala og hlusta á þögina er bara frábært. Reyni svo að munda myndavélina þegar kostur gefst á en er ekki klár á hana en hef gaman af
Fara í fjöruferð finna allslags dót og drasl finnst mér æði. Rekaviður og Grjót er mitt en ekki sumra
Jæja en blíðan heldur áfram
þegar ég flutti hingað suður með sjó voru margir sem áttu ekki til orð hvað ég væri að pæla þetta rok rassgat og engin gróur. Skora hér með á þá sem voru á þeirri skoðun að koma sjá og upplifa gæti ekki hugsað mér að vera annarsstaðar en hér og hérna líður mér best
Bærinn okkar hefur tekið stakkaskiptum og finnst mér hann vera einn sá fallegasti í dag. Læt tvær myndir fylgja með sem teknar voru fyrir tveim kvöldum síðan. Kveð að sinni, HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður pistill Hrönn, Sumarið er svo sannarlega tíminn
Bara kudi hérna f.norðan, tel niður dagana eftir að komast í kjósina, komast í fjöruna og fuglasönginn. Vertu velkomin að kíkja
Björg (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 19:59
Góður pistill. Þetta með hamingjuna er nú mikið komið undir hverjum og einum. Fyrst og fremst að vera sáttur við sjálfan sig og sjá alltaf björtu hliðarnar. Sumarið er yndislegt en það eru nú allar árstíðir líka hver á sinn hátt. Kveðjur.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.6.2008 kl. 20:59
Sammála öllu sem hér er sagt og skrifað. Málið er að kunna sætta sig við það sem maður hefur og gera ekki meiri kröfur en manni er unnt að standa undir sjálfur með þeim sem maður deilir lífinu með
Páll Jóhannesson, 28.6.2008 kl. 11:06
Til hamingju, eitt stórt knús héðan,,
Björg (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 22:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.