8.7.2008 | 19:59
Þingvellir
Góða kvöldið góðir hálsar
Um helgina brugðum við hjónin okkur í útilegu svona upp á gamla móðin með gamalt tjald frá Seglagerðinni Ægir vindsængur og prímus Veðrið lék við okkur sól og blíða
enda ekki við öðru að búast þar sem ég er annars vegar. Ævar brá sér líka í útilegu með vinum sínum og voru þau líka á Þingvöllum rétt eins og við nema ekki á sama tjaldsvæði en stutt á milli svo gott var að koma til mömmu og pabba í morgunmat full þjónusta
Við skruppum svo í Kjósina til Dóra stóra bró og Ingu og boðið þar upp á kaffi og með því enda miklir höfðingjar heim að sækja og sólin lét sig ekki vanta frekar en fyrri daginn og ekki voru allir sem vildu hafa svona mikið af henni
Var gaman að hitta þau og sonurinn kom með okkur til þeirra. Mikill gróður þarna og fallegt hjá þeim enda eru sumir sem fengu græna fingur þegar þeir eignuðust sumarbústað
Vildu helst áður hafa gerfi gras eða malbik en svo þroskast maður með árunum
En mikið var um mývarg þarna á Þingvöllum og sumum til mikillar ama en reddaðist með að kaupa sér flugnanet sem er hrein og tær snilld hefði nú alveg verið glöð ef það hefði verið búið að finna það upp þegar maður var yngri á ferðalagi um Mývatnssveit og mývargurinn alveg ferlegur
Gengum um og nutum fegurðarinna og komum heim glöð og sæl með helgina
Stefnan tekin á næstu útilegu í Heiðmörkina enda stutt að fara
Jæja kemur í ljós hvar við endum ef við förum eitthvað en við verðum komin í sumarfrí eftir helgina
Förum alla vega eitthvað alla vega í Kjósina að hitta familý á hinu árlega Fíragotts móti
Hlakka til að hitta fólkið mitt
Jæja læt nú þetta gott heita í bili og kveð að sinni. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það hefur verið gaman hjá ykkur hjónakornunum. Þú þarft ekki að undra þó hann Halldór sé með græna fingur, það er sko í ættinni. Hafið það gott og skilaðu kveðju minni til allra.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 8.7.2008 kl. 22:31
Dóri með græna fingur - hva er hann hættur að þvo sér eða notar hann aldrei vettlinga
Já hver veit nema við hittumst í Kjósinni.
Og ekki klikka Þingvellir frekar enn fyrri daginn.
Páll Jóhannesson, 8.7.2008 kl. 22:42
heh jæja, semsagt ekki hægt lengur að far með þér í útileg, og hafa þig sem fluguvörn fyrir okkur hin, hah, manstu ?
Gott að heyra að þetta var gaman. heyrðu skuldar þú ekki bref, knús
Helga
helga (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.