17.7.2008 | 20:57
Skrifað í skýin
Góða kvöldið góðir hálsar
Ég vil byrja á að segja frá því að frændi minn í Danmörku hann Vigfús Már á afmæli í dag og óska ég honum innilega til hamingju og takk fyrir síðast lifi á því lengi
Þessi mynd er af honum núna í Júní þegar ég var í Danmörku með vinnuni og hitti þau og átti með þeim ógleymanlegar stundir
Fór svo í sumarbústað til Anítu og Davors þau voru með stelpurnar líka og áttum þar góða daga í góðu veðri og góðu yfirlæti hjá þeim grillað á hverju kvöldi og spilað var kani læt ekki uppi hver vann oftast
Tek reyndar fram að það var ekki ég
Já mín er sem sagt komin í sumarfrí
Og svo á bara eftir að koma í ljós hvað verður gert í fríinu
Palli bróðir Margrét og Sædís komu við hjá Anítu og þeim á leið sinni norður en þau voru í Grímsnesinu.
Og þarna eru þau. Fórum við að skoða okkur um sáum Gullfoss og Geysir skroppið á Flúðir og Laugarvatn yndislegt veður. Héldum svo heim á leið í dag og vorum bara að dóla okkur og skoða nátturuna þvílík fegurð í svona góðu veðri
Styttis svo í okkar árlega fjölskyldumót sem haldið verður í Kjósinni hjá Jóa litla bró og Björgu verður það gaman ef ég þekki okkur rétt
Tók nokkrar myndir á leiðinni heim í dag og meðal annars af skýjunum sem voru á himni en skyggðu samt ekki á sólina og sá fullt af myndum í skýjunum meðal annars Ljón,Tröllkalla,Hesta,Fíla og svo mætti lengi telja voða gaman að horfa á skýin og leika sér
Hrafnhildur hringdi í okkur frá Ameríku og sagði okkur góðar fréttir af henni Kristínu lítlu
Þessi elska er nú farin að standa upp sjálf og styttist í að hún fái göngugrind sem hjálpar henni við að geta gengið
Ekki smá dugleg þessi unga hetja
Hér er mynd af Hrafnhildi með krakkana sína þessi mynd var tekin í okt í fyrra þegar við fórum með henni til Virginíu. Læt þetta nú gott heita í bili og kveð. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:05 | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ! og takk fyrir síðast - sjáumst
Páll Jóhannesson, 17.7.2008 kl. 23:02
Hvað skrifaðir þú í skýin, voru það kannski ljóð. Hlökkum til að hitta ykkur í Kjósinni.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.7.2008 kl. 21:31
Hæhæ gamli vinnufélagi
Gott að heyra að Kristín sé farin að standa og það er allt bjart hjá henni en já ég verð að fara kíkja til ykkar í heimsókn.
Já og dk er bara verið að skoða skóla og hús og svona en ekkert fast plan bara forvitni í mér;) og Dodda
kossar og knús elsku vinkona
Vilborg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 14:25
Hæ ég er komin í tölvuna en hún hefur varla verið tekin úr töskuni í sumar hef haft svo mikið að gera og setti hana í skólatöskuna var bara að prófa
fyrirgefðu en ég bara gleymdi henni ha ha en til hamingju með frænda þin það var allveg frábært að heimsækja þaug hjónin í sumar og þaug eiga heima í allveg frábærum bæ ef ég áhveð eftir nám að gerast dani þá verð ég nágranni þeira biða að heilsa þér og þínum bæbæ Elly
Elly (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.