080808

Góðan daginn og velkomin á fæturSleeping

Mig langar að byrja á því að óska henni Árbjörtu til hamingju með daginn hún er 25 ára í dagWizard Sá dagur sem hún fæddist á  líður mér seint úr minniTounge Ég var þá á leið að skila bílunum mínum til mömmu minnar en hún var þá að vinna á saumastofu á FSA og ætlaði ég svo að fara á rúntinn með vinkonu minni, með mér í bílnum voru Telma frænka mín og Aníta dóttir mín þá aðeins eins ár og sat í bílstólWink En í þá daga var ekki búið að setja í lög öryggisbeltanotkunFrown En til að gera langa sögu stutta komst ég ekki á leiðarenda því að rétt eftir að við lögðum af stað og komum að fyrstu gatnamótum þá var ég búin að lenda í bílslysiFrown Hafð liðið yfir mig undir stýri og mín búin að klessukeyra bílinn sinn og annan tilFrown Stlepunum var komið fyrir hjá langaömmu þeirra og langafa sem bjuggu þá rétt hjá slysstað og ég fór með sjúkrabíl á FSA þegar ég var að koma þangað ranka ég við mér og lít upp í gluggan á þriðju hæð en þar er fæðingardeildin og sé þar vinkonu mína standa í glugganumTounge Hélt þá að ég væri búin að kveðja þennan heim og sæ fólk sem mér þætti vænt um en sem betur fer var það nú ekki svoTounge Vinkona mín fékk að koma niður á slysadeild til mín og var þá sem betur fer með gleðifréttir hún hafði eignast stúlku þennan dag sem fékk svo nafnið Árbjört svo við vinkonurnar brosum alltaf báðar út í eitt á þessu degiWhistling Svo er annað að þennan dag í fyrir ári síðan fékk Ævar sonur minn bílpróf og vona ég að þessi dagur verði honum og öðrum til mikillar gæfuHeart Annars er fátt annað að frétta nema að ég fékk næturgesti sem voru á leið í konuferð til Englands að versla og veit ég að þær eiga eftir að njóta sín við að versla karlalausar en það vantar ábyggilega burðardýr fyrir þessar konurGrin Veðrið er dásamlegtCool Styttist svo í að sumarfríið taki enda vinnan tekur við og skólinn hlakka til en smá kvíði í maganum enda veit maður ekki hvað bíður manns við námið.  Læt þetta nú gott heita í bili og kveð. HJ

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

,,allt er gott sem endar vel" segir máltækið og á svo sannarlega vel við hér. Já heldur þú nokkuð að kerlurnar skemmti sér vel lausar við að hlusta á  leiðinda nöldur í karlpunginum?

Páll Jóhannesson, 11.8.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband