14.10.2008 | 13:02
Ekki fréttir
Góðan daginn og velkomin á fætur
Var að tala við mömmu sem er stödd erlendis á sólarströnd með pabba og báðu þau um kveðjur til allra heilsast vel og eru nátturulega búin að djamma út í eitt þarna fjærri ættingjum og börnum
Eða næstum því en systir pabba og mágur hans eru stödd þarna líka svo að ekki sluppu þau alveg við að hafa ættingjana fjærri sér
En ég læt svo hana um að segja ferðasögu sína þegar þau koma heim
Veit svo sem ekki hvað maður á að skrifa um enda kemst lítið annað að hjá fólki en kreppu tal
Er eiginlega búin að fá nóg af slíku nenni ekki lengur að horfa á fréttir svo ég horfi bara á eitthvað skemmtilegra í imbakassanum
Námið gengur ágætlega miðað við aldur og fyrri störf
Fer í eitt próf í des en svo er einn áfangi próflaus
Ekki leiðinlegt það. Þessi árstími sem framundan er er mér stundum ekki að skapi,finnst oft gott að vera í myrkri en samt ekki alltaf dimmt þegar maður vaknar og fer til vinnu og þegar heim er komið myrkur
Finnst gott að sofa í myrkri en má samt ekki sofa allan sólarhringinn þegar er myrkur synd og skömm
Hlakka til þegar ljósin fara að lýsa upp skammdegið. Væri til að búa á þeim stað sem er bjart allan sólarhringinn og þá mætti ég vaka og þyrfti aldrei að sofa snilld
Skrítið hvað maður getur verið vitlaus eða kannski ekki er bara svona og ekkert við því að gera. Eina góða við veturinn er það að allar flugur sem eru ekki vinkonur mínar leggjst í dvala jú sko fann eitt jákvætt við þetta er allt að koma
En alla vega þá fer ég að telja niður þangað til að sumarið kemur og ætla þá að skreppa í heimsókn á einn ákveðin stað get varla beðið en verð að bíða
Já stundum þarf maður að bíða sama hversu óþolinmóður maður er. Held að ég sé dulbúin Indjáni sem ég var örugglega í fyrra lífi er næstum því viss um það enda er ég með mynd af einum flottum í herberginu mínu sem vakir yfir mér og vermdar á meðan ég hef ekki tíma til þess. Einu sinni var ég alveg sannfærð um að hafa verið uppi á 16 öld sem ákveðin kona og las sögu hennar nokkrum sinnum og geri reyndar enn, hef ekki komist að því hvort þetta sé rugl eður ei svo ég held áfram minni sálkönnun þangað til að annað kemur í ljós
Kannski er ástæðan fyrir hvað mér leiðist myrkrið sú að ég hafi búið eins og fyrr sagði í torfkofa þar sem lítið birta var og myrkur þó dagur væri úti. Já svei mér þá þarna held ég að ástæðan sé komin. Jæja en hvað um þær hugleiðingar mínar vil ég segja að ekki væri nú gaman að vita allt eða ekki neitt spyrja og spyrja kanna og kanna þá koma svör við sumu ekki öllu vera forvitin eða hnýsin er leit manns að svörum ekki það sem kallað er forvitni. Enn ein uppgvötvun mín. Þegar ég var litil stelpa sögðu sumir að ég væri með nefið ofan í öllu held að það hafi verið eldri systkyni mín sem komu með þá speki. Í dag veit ég betur var bara að skoða heimin á minn hátt og fá svör við ýmsum spurningum
Niðustað mín er sú ég var ekki forvitin eða með nefnið ofan í öllu eða með munnræpu ens og þau heldu fram sem eru eldri en ég, þetta kallast að kanna heimin með sínu viti eða nefi og finna svör við því sem ég vissi ekki þá. Verð víst að kveðja núna og halda til vinnu. Þangað til næst kveð ég að sinni. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:03 | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ Hrönn,gott að heyra að skólinn gangi og já það er sko komið nóg af krepputali og veistu ég er líka búin að fá upp í kok af knús og brosbylgjum. ég þarf ekki kreppu til að brosa og segja fólki ef mer þykir vænt um það. Elsku Hrönn mér þykir mjög vænt um þig líka þegar efnahagástand landsins var í blóma. Bestu kveðjur í keflavíkina og veistu það kemur vor eftir veturinn og það stittist í að jólaljósin fara að lýsa upp skammdegið..
Björg (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 20:17
,,Með nefið ofan í öllu...." það hafa þá verið Dóri og Anna - en trúlega er það ástæða þess hve ofboðslega fróð og klár þú ert í dag
Knús
Páll Jóhannesson, 15.10.2008 kl. 22:54
Takk fyrir kommentin hjá ykkur
Er reyndar ekki að falla í alvarlegt þunglyndi bara svona meðal miðað við aldur og fyrri störf
Palli um nöfn segi ég no coment enda taka þeir til sín sem eiga og lesa reyndar þetta ekki svo allt í orden
Með það að vera klár hef ég aldei haldið fram enda veit ég ekki meira en aðrir nema síður sé
Björg hlakka til jóla bíð eftir að geta sett ljósin í gluggana enda ekki mikill myrkrahöfðingi. Búin að skila kveðjuni í Keflavíkina fögru og bið um kveðjur í heiðardalinn
Skilaðu kveðju til vinkonu minnar sem vinnur á sama stað og þú. Bestu kveðjur úr 101 Kef
Hrönn Jóhannesdóttir, 16.10.2008 kl. 10:01
hæhæ langaði bara kvitta
En var að fara inn á lyngmóa heimasíðuna en virkar ekki ;)
Villa (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 08:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.