25.10.2007 | 17:49
Æðruleysi
Góðan daginn góðir hálsar
Þá er körfuboltaverktíðinn komin á fullt. Í kvöld tekur Keflavík á móti Þór AKureyri og skemmst er frá því að segja að ég óska þórsurum alls hins besta enda eru mínir menn í körfunni grænir og glaðir nefnilega UMFN. Þeir taka svo á móti grönnum sínum í Keflavík á sunnudag þar sem ég ætla að mæta og hvetja mína menn
Já í dag hefði hún amma mín heitin Anna Ólafsdóttir orðið 95 hefði hún lifað blessuð sé minning hennar. Æðruleysi dáist ég alltaf af þeim sem hana geta sýnt og nýtt. Fólk sem heldur áfram þrátt fyrir þreningar og áföll í lífinu
dáist ég að
Var að tala við vinkonu mína elskulega sem missti manninn sinn fyrir skemmstu
Hún bar sig vel og sagði þessi fleygu orð maður verður að halda áfram engin annar gerir það fyrir mann börin treysta á okkur sem eftir eru og svo er það í guðshöndum hvað framtíðinn ber í skauti sér. Alveg satt en jesus minn ekki veit ég hvað ég gerði í hennar sprorum vildi bara óska þess að allir þeir sem eiga við einhver vandmál að stíða og finnst lífið ósanngjarnt hugsi sig um og þakki fyrir það sem þeir eiga
Sjálf hef ég dottið í þann pitt að finnast hlutirnir ekki sanngjarnir og oft hugsað um tilgang lífsins fundist sumt ekki vera sanngjarnt og svo farmvegis
Skortir stundum þolimæði hjá mér er allt of fljót að gefast upp ef eitthvað gengur ekki bara strax og helst í gær
Skamm skamm og hana nú þessi fallegi dagur þó hann sé rok og rigning kalt og mér sé farið að vaxa sundfit á milli tánna þá so what hætta þess væli verra gat það verið og takk fyrir að búa við fjölbreytilegt veðurfar engir skógareldar né slíkt
Ætli þeir sem eru að skrælna úr þurkki og berjast við elda yrðu bara ekki ánægðir að fá smá af okkar skammti. En til allra hetjanna okkar sem sýna æðruleysi og skilnig bara takk fyrir að vera til og sýna okkur hinum að við eigum kannski allt of mikið en kunnum ekki að meta það. Elsku besta vinkona hugur minn ber mig hálfa leið veit að hún les þetta ekki en er samt skirfað til hennar takk fyrir allt að ég skildi fá að vera svo heppin að kynnast þér og þinni fjölskyldu. Það verður mitt fyrsta verk næst þegar ég kem norður að koma og faðma þig. Kveð að sinni HJ
24.10.2007 | 14:04
Hugrenningar
Góðan daginn og velkomin á fætur
Í dag eru 25 ár síðan að ég skírði frumburðin minn hana Anítu. Það tók nokkra mánuði að finna nafn á dömuna enda ekki sama hvaða nafn hún fengi Var búin að ákveða nafn en ekki gekk það þar sem ég eignaðist stelpu en ekki sták eins og ég var viss um. Séra Birgir Snæbjörnsson jós hana vatni og blessaði hún var skírð í stofunni hjá langömmu sinni og langafa að Seljarhlíð 13a en í dag búa amma hennar og afi þar. Tilefnið að þessu degi var það að amma min heitin hún Anna var þá að halda upp á sjötugsafmæli sitt deginu fyrr en hún átti afmæli 25 okt
En bara allar konur til hamingju með daginn. Er svo að fara í afmæliskaffi í dag til Konna en hann á afmæli i dag
Ég var búin að skrifa heila ritgerð hérna áðan sem ég tapaði og nenni ekki að skrifa aftur. En aðeins að þættinum í gær á stöð 2 Kompás. Ég á ekki til orð yfir réttarkerfið á Íslandi hvernig það getur komið svona fram við fatlaðan einstakling. Það er nátturulega eitthvað að þegar svona einstaklingar eru vistaðir inn á réttargeðdeild. Það reyndar er ótrúlegt hvað er mikið um að fatlaðir einstaklingar séu bara hafðir í geymslu. Come on það er 21 öldin hélt að við værum komin af steinaldartímabilinu en hvað? Ég verð svo reið þegar ég hugsa um þessa hluti hef sjálf þurft að ganga í gegn um miklan frumskóg þegar kemur að þessum málaflokki lærði líka helling þegar ég var í náminu mínu og tók svo stefnu að mennta mig aðeins og vinna með fötluðum
Vil bara benda fólki sem er klárt að skrifa og koma frá sér rituðu máli vel og veit um málefni sem hlúta að fötluðum sem bortið hefur verið á eða veit um að úrlausnir til handa einstaklingum er ekki til eða boðlegt að hafa samband við þá á stöð 2 Kompás. Þeir vilja benda fólki á að láta þá vita ef kerfið hefur brugðist einhverjum einstaklingum sem eru fatlaðir. Margur er í hálfgerðri geymslu vegna úrræðaleysis sveitarfélaganna þeir bera við manneklu og peningarleysi sem að mörguleyti á við rök að styðjast því ekki er maður að vinna við þetta vegna hárra launa frekar af hugsjón
Vona að minnsta að ég geti hjálpað þeim einstaklingum sem ég vinn hjá og leyft þeim að njóta sinna mannréttinda. Ef eitthvað kæmi fyrir þau eigum við að hafa mannréttindi þeirra að leiðarljósi hjálpa þeim og styrkja veita þeim alla þá aðstoð sem við getum svo þau megi lifa sem eðlilegustu lífi og njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Læt nú þetta duga í bili og kveð. HJ
21.10.2007 | 20:04
Stutt og laggott
20.10.2007 | 12:45
Brostu framaní heiminn
Góðan daginn og velkomin á fætur ´
Já þá brosir hann framaní þig. Mér datt þetta í hug í nótt gat ekki sofnað um leið og ég lagðist á koddan svo ég fór að hugsa um lífið og tilveruna aldrei slíku vant skéður ekki oft en kemur fyrir
Einn kona sem ég þekki virðis nefnilega halda það að allir aðrir en hún hafi það betra en hún
Að þurfa að eiga samskipti við slíkar manneskjur getur gert mann gráhærðan með meiru. Af hverju að eyða tíma sínum og ævi í beiskju og gremju
Frekar að sjá hvað lífið hefur upp á að bjóða. Sumir ganga í gegn um erfiðleika sem manni finnst oft nóg um öll upplifum við sorgina mismunandi mikið en við komumst ekki hjá því enda gangur lífsins
Til að takast á við mótlæti og erfiðleika þarf að vera hugsandi og vakandi. Oft hef ég hugsað hvað ég á virkilega gott því margur hefur það miklu verra en ég. Að eiga fjölskyldu er ekki sjálfgefið hvað þá að eiga börn og barnabörn sem eru heilbirgð. Það eru ekki allir þeirra gæfu aðnjótandi, svo ef maður brosir alla vega í gengum tárin þá fær maður bros á móti og heimurinn brosir allur
Annars er það að frétta hérna frá Suðurnesjum að lífið gengur sinn vanagang Vinna sofa éta hvað meira er hægt að biðja um. Sveina mágkona mín er stödd hér á landi en hún býr í Tampa í Florida verður hérna uppi á fróni í mánuð
Hef aðeins hitt hana. Gústi yngri fór í tanntöku
svona ólíkt frændsyskynum sínum sem eru að fá tennur en hann fór til sérfræðings til að láta skera fyrir endajöxlunum sínum og er bólgin og þrútinn greyjið
En nær sér vonandi fljótt. En svo í dag að ég held koma mamma og pabbi til landins frá Costa del Sól
eftir þriggja vikna frí og vonandi sleppa í gegn um tollinn
Það verður ábyggilega kalt að koma heim í heiðardalinn eða alla vega hefur verið ansi kalt undanfarið en mamma og pabbi velkomin heim. Læt þetta duga í bili og kveð. HJ
16.10.2007 | 15:48
Téin tvö
Góðan daginn og velkomin á fætur
Jæja þá er maður komin heim úr fríinu sínum sem var allt í allt sex dagar og ekki leiðinlegt að fá smá pásu frá hinu hversdagslega lífi Við hjónin skelltum okkur út í hina stóru Ameríku sem ég er búin að skýra upp á nýtt téin tvö standa fyrir trjám og trukkum
Nóg var af slíku í USA sé líklega tré næstu daga. Hitinn var ótrúlega góður 25-30 stig hefði ekki mátt vera meiri fyrir íslendinga eins og mig. Versluðum heil ósköp af fötum og þarf ekki að kaupa næstu daga meira
Vorum eina nótt í Baltimore og færðum okkur svo yfir til Virginíu nánar tiltekið til Richmond var náð í okkur til Baltimore seinnipartinn á fimmtudag og dvöldum í Richmond þangað til við fórum heim á sunnudagskvöld
Dvöldum þar á tveim hótelum fyrra heitir Days Inn sem ég mæli engan vegin með
Hitt var Embassy og mæli sko með því það er í Hilton keðjunni og gæðin þjónustan og umhverfið allt til fyrirmyndar manni leið eins og kóngi og drottningu þar
Verlslað var í Wall Mart, Key Mart, JC Penny, Old Navy og einhverri sportveruverslun sem ég man ekki nafnið á. Vinarfólk okkar sá að mestu um að keyra okkur tókum bara einu sinni leigubíl ætluðum að labba einu sinni en þá vantaði gangbrautir og við ekki nógu klár til að labba á hraðbrautunum
Skoðuðum okkur um þarna sáum mikið og margt gaman fyrir utan öll tréin sem ekki vantar þarna hús inn á milli og stundum ekkert nema tré
Fórum svo út að borða á Laugardagskvöldið með Hrafnhildi James Kristínu Rob og Stínu æðislega góður matur þarna verslaði svo jólagjafir handa James og Kristínu sem ég skildi eftir úti handa þeim.
Kvöddum þau svo á sunnudag þá var haldið yfir til Wasington keyrt labbað og skoðað heilmikið meðal annars Hvítahúsið Buch var ekki heima til að bjóða okkur upp á kaffi
Ferlega mikið skoðað og labbað held að ég sé búin að labba fyrir næsta mánuðinn og 10cm styttir eftir alla gönguna
En ég mátti nú ekki við því. Komum svo heim á mánudagsmorgun í skítakulda enda ekki vön slíku eftir gott sumar hér á Suðurnesjum
Þreytt og ánægð með góða ferð farin að plana þá næstu
Allir ánægðir með það sem þeim var fært þegar heim kom. Reyndar er tómlegt hérna í kotinu eftir að Hrafnhildur og krakarnir fóru en við verðum nú ekki lengi að venjast gömlum siðum aftur
Jæja en svo var hann frændi minn að flytja hingað í Njarðvíkurborg og ætlar að dvelja þar hjá góðum hjónum og taka upp góða siði
Svo kannski fer maður að rekast á hann á götum bæjarins. Í gær var svo borinn til grafar vinur okkar hann Ásgeir en við vorum nýlent hérna svo við sáum okkur ekki fært að fylgja honum síðasta spölinn en ég hafði samband við prestinn í Akureyrarkirkju þaðan sem hann var jarðaður frá og kom kveðju til aðstandenda hans frá okkur. Takk fyrir allt Geiri minn góður vinur sem þar var á ferð. Kveð að sinni. HJ
8.10.2007 | 11:55
Þessi fallegi dagur
Góðan daginn og velkomin á fætur
Mig langar aðeins að skirfa hérna áður en ég held á vit ævintýrana í Baltimore Í dag á hún Sædís frænka mín afmæli er komin á bílprófsaldurinn til hamingju með daginn
Og svo er þessi líka fallegi dagur hérna. Tengdamóðir mín heitin hún Sigríður Óladóttir hefi orðið 70 ára í dag í tilefni dagins ætlum við að tendra ljós hjá henni og setja blóm á leiði hennar.
Annars er svo sem ekki mikið að gera nema að pakka niður fyrir Hrafnhildi og ganga frá áður en haldið veður til USA. Við verðum nú ekki lengi að pakka enda lítið farið með og örugglega meira sem kemur til baka Stína mágkona mín maðurinn hennar og tvö börn eru að fara sama dag og við en þau ætla til Tenerif
Daginn eftir að við förum út kemur svo Sveina mágkona til landsins en hún býr í Orlando og ætlar að stoppa í mánuð hér á klakanum.
Vona svo bara að næstu tveir dagar líði fljótt og áður en varir fer ég á vit ævintýra. Vona svo að sárin grói fljótt og sendi mínar bestu kveðjur norður yfir heiðar til vinkonu minnar og fjölskyldu hennar. Megi góður guð vaka og styrkja þau. Kveð að sinni. HJ
5.10.2007 | 09:28
Brotið hjarta
Góðan daginn og velkomin á fætur
Já það er óhætt að segja að lítill tími hefur gefist til að skrifa hérna inn. Mest allur tími fer i að vinna og sinna sínum börnum og barnabörnum. Alls lags pesir hafa verið í gangi þegar einn hressist tekur annar við og svo framvegis.En sem betur fer gengur þetta allt yfir og engin skaði skéður
Fékk símtal í gær frá vinkonu minni einni á Akureyri og voru þær fréttir sem hún færði mér hreint út sagt hræðilegar. Maðurinn hennar lést á miðvikudag Fékk rosalegan stíng fyrir hjartað þegar hún sagði mér þetta. Hef hreinlega grátið úr mér lungu og lifur skil ekki hvernig þetta getur gerst að fólk sem kennir sér einskis meins og er í vinnu allt í einu kveður svona án nokkurs fyrirvara
Eftir stendur hún þessi elskulega vinkona mín ein með börnin þeirra 5 sem áttu svo mikið bágt og grétu svo sárt. Verst af öllu er sú staðreynd að mér gefst ekki kostur að fylgja honum eftir síðasta spölin vegna þess að sama dag og hann verður borin til grafar er ég að koma heim frá Baltimore snemma dags og hef ekki tök á því að fara norður og kveðja hann
Því miður og finnst það skríið að vera fara erlendis þegar svona stendur á. En ég bið fyrir þeim og vona að aðrir geri slík hið sama enda er þetta óskaplega sárt og erfitt að horfa á eftir sínum nánustu á braut. Góður guð vaki yfir fjölskyldunni þeirra. Sem betur fer heimsótti ég þau í sumar og hitti þau met ég það mikils og vináttuna við þau frá því að ég var unglingur og kynntist þessum hjónum.
En svo aðeins að öðru styttist nú verulega í utanlandsferð okkar hjóna og ekki laust við spenningur sé komin og líka tregabundin samafara öðru en ætla að reyna að njóta þess þrátt fyrir sorg í hjarta. Önnur vinkona mín sem bjó hérna fyrir sunnan tók sig til og flutti austur á Reyðarfjörð og ætlar að freista gæfunar þar og óska ég henni alls hins besta, reyndar les hún þetta blogg aldrei en samt ég kom þessu á framfæri Einn frændi minn er svo að koma hingað í næsta nágrenni við mig nánar tiltekið í Njarðvíkurborg og tíminn einn leiðir í ljós hversu langur tími það verður sem hann eyðir hérna. Kom loks að þvi að einhver af mínum ættingju flytti hingað og hver veit nema fleiri fylgi í kjölfarið verið kannski varla þverfótað fyrir ættingjum
Mér þætti það alla vega ekki leiðinlegt
Jæja læt þetta duga i bili. HJ
26.9.2007 | 08:37
Hún á afmæli í dag
Góðan daginn og velkomin á fætur
Ég vil byrja á að óska Margith til hamingju með daginn en hún er 30 ára í dag Hún býr ásamt manninum sínum honum Vigfúsi(systursonur minn) og tveim börnum sínum þeim Andrias og Arndís í Middelfart í danmörku. Vona að þau eigi góðan dag saman og vil benda fólki á að senda henni kveðjur á bloggsíðu þeirra sem er www.blog.central.is/margith
Jæja en svo að allt öðru haustið komið með sínu roki og rigningu. Hérna hefur verði líf og fjör Hrafnhildur með krakkana sína svo ekki er nú lognmolla í kotinu Nóg að gera og við alveg búin á því að kvöldi dags enda held ég að við höfum slegið met á að fara snemma að sofa hefur ekki skeð í langa herrans tíð eða síðan við vorum aðeins yngri
En þetta er nú gangur lífsins og gaman að geta notið barnabarnana en í sannleika sagt líka gott að geta skilað þeim til foreldra þegar þreytan segir til sín.
Við hjónin erum svo að fara í okkar fyrstu utanlandsferð núna 10 okt og komum heim aftur 15 okt Við erum að fara til Baltimor og verðum þar á hóteli og vonum að það verði bara gaman
Gústi hefur aldrey áður farið erlendis með flugvél fór hér á árum áður í nokkrar siglingar og ég hef bara farið tvisvar áður þegar ég var 16 ára til London og svo fyrir 8 árum síðan til Þýskalands með kvenfélaginu og engir karlar með í för
Svo það er komin nettur fiðringur í okkur enda búin að vera saman í 21 ár og ekki farið saman út áður.
Mamma og pabbi eru að fara til Costa del sól á laugardaginn og ætla að sóla sig í þrjár vikur þar og veit að þau hafa gott af því og eiga það svo sannarlega skilið að geta leyft sér að slaka á og njóta lífsins. Verð svo bara að vinna eiginlega út í eitt þangað til við förum út aukavaktir og næs. Mikið að gera hjá Gústa núna unnið um helgar enda standa fyrir dyrum flutningar hjá DM í Garðabæ hingað á gamla varnarsvæðið og svo fer jólavertíðin hjá þeim að byrja ekki seinna vænna enda bara tæpir 3 mánuðir til jóla. Læt þetta gott heita í bili og kveð. HJ
18.9.2007 | 11:42
Listin að segja nei
Góðan daginn og vekomin á fætur
Já það er til margskonar list ein af þeim er listin að tjá sig í orðum. Það getur verið ansi vandasamt oft á tíðum. Oft er það nú svo að maður segir já alltof oft og getur hreinlega ekki annað Heldur að það sé vonska að segja nei. Sumir eru þannig að þeir hreinlega geta ekki notað þetta orð eru hræddir við viðbrögð annara
Hvað ætli viðkomandi segji ef ég geri ekki þetta og hitt. Þá heldur fólk að maður nenni ekki eða hafi ekki áhuga á að hjálpa öðrum. En til þess að geta hjálpað öðrum þarf að kunna listina að hjálpa sér sjálfur. Oft er það nefnilega svo að þegar allt kemur til alls þarf maður fyrst og fremst að treysta á sjálfan sig en ekki aðra
Af hverju skildi það vera svo að maður haldi að orðið nei sé endilega neikvætt. Var að tala við eina vinkonu mína um þetta orð hún spurði mig hvort ég gæti sagt nei og staðið við það. Auðvitað hvað annað Jæja kella þegar hringt er í þig og beðin að koma aukavakt hvað þá? Nú auðvitað já hvað annað ekki getur maður nú sagt nei við því þegar aðrir eru veikir eða þurfa að gera eitthvað annað. Akkúrat ekki hægt að segja nei
En þegar einhver biður þig um að keyra sér eða koma eitthvað þegar þú ert búin að ákveða að gera ekki neitt jafnvel eða ætlaði að eyða deginum í eitthvað annað? Nú auðvitað segir maður já og heypur til ekki hæg að ætlast til að aðrir geri það sem maður er beðin um svo svarið er Já
Nákvæmlega sagði vinkona mín alltaf að hlaupa til og bjarga öðrum en sjálfum þér. Hvað meinar þú nákvæmlega það sem ég spurði þig um fyrst sagði hún þú kannt sem sagt ekki að nota orðið nei í jákvæðri merkingu fyrir sjálfa þig. Skrítið aldrei hafði ég hugsað þetta svona. Hugsa um sig sjálfan fyrst er ekki alveg það sem kemur fyrst upp í huga manns heldur að aðrir hljóta að vera númer eitt
Því skildi það vera svo að mannskepnan er alltaf að reyna að gera örðum til hæfis og eltist við álit annarra á hlutunum. Ja ekki get ég svarð því frekar en mörgu öðru. Hvað skeður svo þegar að líkamin eða sálartetrið gefst upp á þessu eltingarleik við að sinna öðrum en sjálfum sér. Nákvæmlega allir þeir vírusar og veirur sem eru í umhverfinu sjá þarna sér leik á borði og ráðast með fullum krafti svo að fólk er helmingi lengur en vanalega að ná sér á strik aftur og orkan þrotin sálartetrið er ekki að virka sem stendur.
Það eru til námskeið við mörgu svo sem sjálfstyrking. Sem er ábyggilega góð og kemur í góðar þarfir fyrir marga. Jóga alla vega námskeið, Matreiðslunámskeið, listnám hvers konar og svo lengi mætti telja jú námskeið við að ala upp börn sín rétt svo verða þau stór stofna heimili og allt sem því fylgir en þá er jú gott að eiga góða að? Ekki satt. Jæja en hvað um það finndist að ætti að koma á fót námskeiðum fyrir fólk að læra að segja nei á réttan hátt við aðra án þess að það móðgist hræðilega og nei getur verið líka í jákvæðri merkingu eða hvað finnst öðrum. Kveð að sinni. HJ
12.9.2007 | 20:07
Lasarusarbæli
Góða kvöldið góðir hálsar
Þá er nú haustið komið með sinni rigningu roki og meiri rigningu og stormi En maður hrósar nú happi að vera innan dyra og í húsi en ekki túristi í tjaldi á ferðalagi um Ísland
Ég get svo svarið það að ég er ein af þeim mörgum eða fáum eftir því hvernig á það er litið sem verð sjaldan veik og frá vinnu vegna veikinda
Svo bregðast krosstré sem önnur og þá er það bara tekið út allt í einu. Veiktist nokkrum dögum fyrir Ljósanótt og ætlaði að harka þetta af mér eins og sönnum Fýragotti sæmir
Eftir viku fór ég til læknis komin með í lungun og næs. Náði mér eftir stuttan tíma á lyfjum og fór að vinna enda ekki hægt að sitja og gera ekki neitt nema vera veikur
Hrafnhildur fór með börnin sín í Sandgerði og huggðist koma heim eftir Ljósanætur helgina en þá tóku bara aðrir við af mér Sævar lagðis í bælið veikur og ég hreinlega eins og draugur með allt annað en kvef, höfuðverkur dauðans hefur verði hérna hjá mér í nokkra daga og dugir lítið á hann. En frestaðist fór Hrafnhidar með krakkana enda ekki mikið að sækjast eftir hérna nema veikindi. Huggðis koma heim í dag en viti menn þá bara tók sá næsti við Ævar kom veikur heim úr skóla og hefur legið hérna meðvitundar litill í draumheimum
húsbóndin er sá eini sem hefur nokkurn vegin sloppið en
Og ansi furðulegt enda er nóg að það komi í fréttum að flensa sé í gangi þá er hann lagstu með það sama
En sem betur fer 7,9,13, Hann blessaður fékk sinn skerf að veikindu í vor og vonum að það sé nú nóg komið. Vonumst til að Hrafnildur geti komið eftir helgina með krakkana en það er en rétt um mánuður þangað til þau fara aftur heim til sín. Svo við fáum nú að njóta þeirra áður. Ég er í ömmu leika þessa dagana næ í Ivan Frey á morgnana og keyri hann til dagmömmu næ svo í hann þegar hann er búin og hef hann smá stund þangað til mamma hans kemur heim og svo á föstudögum hef ég hann í tvo klukkutíma þar sem dagmamman er bara með opið til kl 14 Gústi er líka í afahlutverkinu með mér en stundum er ég að vinna svo hann tekur við guttanum
Þetta breytist nú fljótt þegar Aníta fer að vinna hérna á gamla varnarsvæðinu og þá getur hún sjálf komið prinsinum og tekið við honum nema á föstudögum þá fáum við að leika okkur með hann
Jæja en læt þetta nú gott heita í bili og kveð. HJ
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar