10.12.2007 | 12:29
Desember











8.12.2007 | 18:35
Nýjar myndir

3.12.2007 | 09:20
Hvað er í gangi
Góðan dagin og velkomin á fætur
Já hvað er í gangi var byrjuð að blogga svo bara allt í einu hvarf allt er þetta tákn um að hin færslan hafi ekki verið nógu góð ha Er andlaus núna. Mikið hefur gengið á hérna á suðurnesjum síðustu daga sorg og reiði vegna slys á litlum dreng sem dró hann til dauða og sá sem keyrði á hann stakk af og lét sig hverfa
Kveikt var á friðarkertum og blóm lögð á þann stað sem keyrt var á hann og lét ég ekki mitt eftir liggja þetta er hörmung
Á föstudagskvöldinu fór ég að föndra ásamt vinnufélögum mínum og gerðum við eitt stikki jólasvein sem verður vonandi komin á sinn stað innan skamms og tek ég myndir af honum og set inn hérna hjá mér Ég hélt að ég væri svo mikið jólabarn í mér en síðustu dagar hafa eiginlega afsannað það
Er ekki búin að skeyta allt hjá mér ekki búin að baka eða réttara sagt ekki byrjuð að því og svo mætti lengi telja veit eiginlega ekki hvað er að gerast hjá mér bíð eftir að andinn komi og hjálpi mér
Anna systir mín kom hingað í heimsókn í síðustu viku og fórum við á búðarráp í höfuðborginni og áttum góðar stundir saman. Sendi hana með pakka norður til vinkonu minnar sem missti manninn sinn fyrir nákvæmlega tveim mánuðum síðan
Einn af mínum kærustu vinum. Hringdi svo Anna í mig og lét mig vita að hún væri búin að koma þessu til skila og hitta hana vinkonu mína sem var svo döpur og lútin engin ánægja né gleði í svip hennar
Sem er auðvitað skiljanlegt finnst ég eitthvað svo vanmáttug núna og tóm í mér get ekki verið henni innanhandar og jólin framundan man ekki eftir svona líðan hjá mér áður en fer nú vonandi að lagast. Það eru svo margir sem eiga um sárt að binda og erftitt að gleðjast þegar svona stendur á fyrir fólki. Vil einnig benda fólki að kíkja á síðuna hjá Palla bróðir og mömmu minni til að leggja sitt af mörkum handa fólki sem þarfnast hjálpar núna á aðventuni og leggja sitt af mörkum.
Á fimmtudagskvöldið var svo hin árlega aðventukransagerð hjá okkur konunum. Þar hittumst við ég og Aníta ásamt fjölskyldu Ingu mágkonu minnar þar að segja konurnar bara ekki karlar Á sunnudaginn næsta er svo áætlað að gera laufabrauð í Kópavoginum hjá henni Siggu það er alltaf hist þar og laufabrauðið gert og hlustað á jólalög veit ekki hvað ég gerði ef þetta væri ekki orðin hefð hjá okkur
Þessi hefð var gerð þegar ég bættist í hópin og flutti hingað suður fannst Ingu þetta upplagt enda komst hún á bragðið með laufabrauðið þegar hún kynntist Dóra bróðir og bjó fyrir norðan einhverntíman á síðustu öld
Aðeins eitt að lokum vil ég óska Önnu systir til hamingju með daginn á morgun en þá á hún afmæli veit að hún les þetta ekki en samt. Kveð að sinni. HJ
26.11.2007 | 12:31
Helgin að baki og ný vinnuvika
Góðan daginn og velkomin á fætur
Mikið hefur verið að gera hjá mér undanfarið. Fór í sumarbústaðarferð með fólkinu sem ég er að vinna hjá og með einum starfsfélaga mínum líka Mikið frost var en fallegt veður og umhverfið alveg æðislegt við vorum í Vaðnesi í bústað sem SFR á hann er bara hreint út sagt flottur Fórum svo á Selfoss og Eyrabakka i rauðahúsið þar sem fylgst var með fótboltaleik Ísland-Danmörk
Jæja en svo á laugardag kom Ragnar Þór frændi minn í heimsókn og var hér í nokkra klukkutíma og hafði gaman af
Ivan Freyr kom til ömmu og afa um hádegið og vorum við að passa hann á meðan mamma hans og pabbi fóru á jólahlaðborð og fengu svo að sofa út
En ekki fengu amman og afinn það enda fáum við að sofa nóg alla hina dagana
Gekk vel með hann og gaman að fá hann lánaðan og skila aftur
Er svo að fara í höfuðborgina að ná í Önnu systir hún ætlar að koma og vera hérna í sólarhring og ætlum við að fara í búðarráp og njóta þess að vera bara við engin börn í eftir dragi sem heimta hitt og þetta
Á morgun er svo stór dagur en þá verður prinsinn minn "litla" barnið okkar 16 ára og eitt ár í bílprófið hann fer að telja niður eftir morgundaginn okkur til mikillar"gleði" Svo má ekki gleyma prinsessuni okkar henni Krístínu litlu sem býr í Las Vegas en hún veður eins árs á morgun sama dag og frændi sinn
Mikið er nú tíminn fljótur að líða man vel eftir þessum degi fyrir ári síðan þegar beðið var eftir fæðingu Kristínar og mikið stress í gangi hérna hjá okkur með litlu hnátuna sem er að spjara sig vonum framar í dag
Til hamingju bæði tvö
með morgundaginn. Verð í frí í dag og morgun á svo asskoti góða vinnufélga og yfirmann sem leyfa mér að vera í frí svo ég geti eytt tíma með systur minni gott að vera ánægður með vinnuna sína
Bið svo að heilsa í bili. HJ
19.11.2007 | 11:16
Nútíminn
Góðan daginn og velkomin á fætur
Morgun stund gefur gull í mund Fór hérna út í morgun og sá þá gamlan mann sem ég hitti í sumar hérna í okkar listigarði sem ekki er langt frá mér. Þessi gamli maður settist við hlið mér og tók að spjalla um lífið og tilveruna
Hann er ekki lengur að vinna komin á aldur en fer alltaf langar gönguferðir á daginn og týnir þá upp dósir og flöskur sem hann sér liggja á viðavangi um allt
Leggur svo afraksturinn inn á bankabók og notar til að gefa barnabörnum sínum ýmsar gjafir
Hann hefur verið að semja ljóð og fór með nokkur fyrir mig. Ivan var með mér í vagninum sínum og gamli maðurinn leit á hann fannst hann ósköp fallegur drengur
Sagði svo við mig vonandi á þessi drengur eftir að spjara sig í lífinu og halda sig fjarri ósóma og vandræðum. Tjáði mér að margur ungur maðurinn færi því miður skakka leið og lenti í viðjum eiturlyfja og glæpa
Já svona er víst nútímnn sagði hann hérna á árum áður drukku menn og slógust og í mesta falli kýldu tennur í viðkomandi en ekki meira en alveg nóg. Já nútíminn getur tekið á sig ýmsar myndir. Til dæmis eitt þvottavélin mín fór í verkfall um helgina og ég svo sniðug að taka með mér þvott í vinnuna. Ekki eru allir svo heppnir maður verður hálf vænglaus ef eitthvað af nútíma þægindunum bregst okkur
En sem betur fer hefur hann létt okkur lífið til muna og gert þægilegar. Alla vega þau tæki og tól sem til eru að létta okkur vinnuna og voru ekki til í "gamla" daga.
Svo fer að koma að árlegu jólaföndri og laufabrauðsgerð hjá okkur konunum en við erum nokkrar sem hittumst og eigum góðar stundir saman höfum gert þetta í mörg ár og alltaf jafn gaman Nokkrir dagar þangað til að "litla" barnið mitt verði 16 ára og Krístin Rae verði 1 árs
Mikið er nú tíminn fljótur að líða finnst svo stutt síðan að hún fæddist og við vorum með allan okkar hug hjá þessari hetju sem mikið hefur verðið lagt á. Hún er nú flutt ásamt bróðir sínum og foreldrum til Las Vegas. Verða þar í að minnsta kosti tvö ár. Jæja læt nú þetta verða gott í bili og kveð. HJ
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.11.2007 | 16:25
Sunnudagur til sælu
Góðan daginn góðir hálsar
Þá er þessari vinnuhelgi að ljúka hjá mér Ekki það að mér finnst voða gott að eiga frí um helgar. Ekki gat ég nú verið minni en meiri hluti íslendinga svo ég brá mér af bæ i gær og fór í höfuðborgina áður en ég fór að vinna og skoðaði hina frægu verslun Toys eitthvað
Jæja ekki gat ég nú eytt neinu svo ekki fékk ég æði eins og spaugstofumenn
Horfði svo í gærkvöldi í vinnuni á laugardagslögin og var sátt við lagaval og úrslitin fannst þau vera sanngjörn flott lag hjá henni Anderu Gylfa
Annars er nú ekki mikið að frétta héðan frá suðurnesjum enda rólegt fólk með afbrigðum
Vikan sem var að enda var ansi annasöm þá daga sem ég var ekki að vinna var ég á námskeiðum og var það gaman sérstaklega á brunavarnaræfingu þá fengum við að fikta með slökkvitæki og urðum hálgerðir krakkar að leika með dót
Svo á fimmtudagskvöldið brugðum við okkur hjónin á tónleika sem haldnir voru í Njarðvíkurkirkju og hlustuðum þar á Magnús Þór Sigmundsson en hann er fæddur hér. Rosalega flott lög hjá karlinum
Annars er það dálitið merkilegt að margir af okkar bestu tónlistarmönnum eru fæddir hérna á Suðurnesjum svo ekki er nú leiðinlegt að fá andargiftina hér
Hún reyndar stoppar ekki við hérna hjá mér alla vega. En svo um næstu helgi ætlum við að passa hann Ivan og leyfa honum að sofa hjá okkur á meðan foreldrarnir fara á jólahlaðborð með vinnuni hennar Anítu. Við erum svo góðir foreldrar að við leyfum þeim frekar að fara og erum heima að passa fyrir börnin
En það verður bara gaman að fá að hafa hann og spilla honum og skila svo til baka
En ég læt nú þessu lokið í bili enda er ég að vinna eða á að vera það. HJ
12.11.2007 | 10:35
Að sigra heiminn
Góðan daginn og velkomin á fætur
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekinsglegum svip og taka í nefið. En þótt þú tapir það gerir ekkert til því það var nefnilega vitlaust gefið
Pæling?
Hvenær sigrar maður og hvenær tapar maður? Já þegar stórt er spurt er oft lítið um svör mér datt þetta í hug núna í morgunsárið Annars er mér ekki tamt að ætla að sigra heiminn enda engin manneskja til þess
Var að tala við unglingsstrák sem er í framhaldsskóla og spurði eins og flestir hvað ætlar þú svo að læra og verða þegar þú ert orðin stór eða stærri Hann svaraði ég veit það ekki. Ha veistu ekki hvað þú vilt læra spurði ég? Nei ég get bara ekki ákveðið mig núna og veit ekki hvað ég vil enda ekki nema rétt orðin 17 ára. Hvað meinar þú spurði ég. Hann svaraði vissir þú þegar þú varst á mínum aldri hvað þú vildir læra og starfa við? Nei ég vissi það ekki enda fannst mér þá lífið vera rétt að byrja og óþarfi að spá í svona hluti þegar ég var rétt komin með bílpróf og hafði nóg að gera við að rúnta og hafa gaman
Nákvæmlega þannig. Jæja við héldum áfram að tala um lífið og tilveruna og kom mér svo mikið á óvart. Þegar maður er sjálfur orðin foreldri og fer að spyrja börin sín eða aðra gleymir maður oft að vorum við viss á þessum aldri sjálf. Veit alla vega með mig ekki vissi ég það fyrr en mörgum árum síðar og nokkrum börnum síðar
Jæja en svo sagði kauði svo lítið við mig sem kom mér verulega á óvart hann sagði ég veit það hérna inni
hvað ég vil gera en ég kem því bara ekki frá mér það er svo langt að sækja það. Mig langar að tala við sálfræðing eða félagsfræðing til að fá leiðbeiningar um hvernig ég nálgast sjálfan mig og finn hvað ég vil gera, Tala við einhvern sem ekki er tengdur mér og hlustar á að ég er enn ungur og óreyndur veit ekki allt og skil ekki allt
Úff ekki hafði ég hugmynd um að við erum kannski að þrýsta of mikið á okkar börn og gleymum kannski að þau eru jú rétt að byrja lífið og svo mörg ár framundan ef guð og gæfan leyfir. Vona bara að vinur minn þessi ungi og efnilegi drengur finni sjálfan sig og er stolt af því að hann getur viðurkennt að kannski þurfi hann leiðsögn við val sitt í framtíðnni.
Ég bara varð að segja frá þessu vildi óska þess að mér hefði dottið slíkt í hug þegar ég var á þessum aldri og vissi ekki frekar en svo margir aðrir hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór Veit það vonandi núna. Læt þessum hugrenningum lokið og kveð. HJ
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.11.2007 | 11:16
Nýr her til suðurnesja
Góðan daginn og velkomin á fætur
Þá er komin ný vinnuvika og helgin að baki Er reyndar bara ansi þreytt eftir hvíldina sem átti að vera svo mikil og góð hjá mér.
En það er nú eins og oft áður alltaf finnur maður sér eitthvað að gera þó svo að ekkert liggi fyrir. En hvað með það. Fór í smá breytingar hérna hjá mér í stofunni færði til húsgögn. Við fengum gefins skenk sem foreldrar Gústa áttu og bróðir hans fékk eftir að mamma þeirra lést
En er komin hingað til okkar og príðir stofuna vel. Við þessar breytingar og smá tilfærslu virðist sem stofan hafi stækkað og fermetrarnir fleiri
Karlarnir mínir voru svo að vinna á laugardaginn allir nema Ævar sem var í ferðalagi með FS og skemmti sér víst vel. Við Aníta fórum svo að skoða jólamarkað sem er til húsa í Stapanum ekki eyddi ég þar neinu enda svo hagsýn húsmóðir að flestar jólagjafirnar er ég búin að föndra sjálf og bíða bara eftir að fá að gleðja aðra um jólin Við fórum nokkrir vinnufélagar að föndra í Röstinni en þar var á sínum tíma verbúðir. Magga sem er ein af okkur leiðbeindi og sagði til enda vön kona þar á ferð og var þetta hin besta skemmtun fyrir okkur mikið gert og mikið hlegið
En svo í seinnipartin í gær brugðum við okkur hjónin á gospel tónleika sem haldnir voru á gamla varnarsvæðinu í boði Hjálpræðishersins. Og var hin ágætasta skemmtun ekki var margt um mannin þar en nokkrir sáu sér fært að mæta fyrir utan fólkið sem er í hernum meðal annars var þar fyrrum skólabróðir minn úr Glerárskóla sem er séra hérna í Keflavík. Hjálpræðisherinn er sem sagt að halda innreið sína á gamla varnarsvæið og sem sagt nýr her að koma til suðurnesja
Hef reyndar lúmskt gaman að fara svona á samkomur hjá hinum ýmsu félögum og sjá flóruna. Allt hefur þetta reyndar sama tilganginn. Reyndi sjálf þegar ég var yngri og villtari að vera í svona trúfélagi lærði margt á þeim tíma og fannst gaman Sé ekki eftir því í dag að hafa prufað það. Annars gengur svo lífið sinn vanagang hérna frost á fróni
Bíð svo spennt eftir að heyra um samtalaði við granna á blogginu hjá stórabró. Á reyndar fullt af grönnum sjálf eins og gefur að skilja en þeir eru nú flestir pólskir svo ég skil þá takmarkað get kannski sagt sögur seinna ef mér tekst að skilja þá
Kveð að sinni. HJ
31.10.2007 | 10:34
Undurfallegt bros
Góðan daginn og velkomin á fætur
Undurfallegt bros fæ ég á hverjum morgni frá barnabarninu mínu honum Ivan Frey Var einmitt að pæla þegar ég náði í hann og keyrði honum til dagmömmu hvað þessi drengur er kátur.Þegar ég mæti heim til hans er hann alltaf jafn brosandi og ekki málið að kveja pabba sinn og koma til ömmu
Hvering er annað hægt en að geta fundist þetta fullkomin byrjun á svo annars góðum degi
En svo eru hin barnabörnin líka með falleg bros og undurfalleg augu mikið á ég nú annars falleg börn og barnabörn það finnst mér alla vega og er stolt af þeim
Jæja en ekki staldraði snjórinn við lengi hjá mér hann er allur farin og bílinn minn en á sumardekkjum Keyrði fram hjá dekkjaverkstæði á mánudaginn og voru að minnst 30-40 bílar í röð að bíða eftir að fá vetrardekkin undir sig
Hef svo undarfarið verið að leika mér að gera listaverk
Gera hina ýmsu muni úr gleri sem er svo brætt og úr verður þetta flotta verk eftir mig með hjálp góðra konu sem er að kenna mér
Kannski kemur listakonan í mér fram fljótlega
Eftir nokkura mánaða bið fékk svo Gústi loksins niðurstöður úr rannsóknum sem hann fór í vor í kjölfar veikinda hans fannst æxli við hægri nýrnahettuna
En útkoman núna var góð og veður fylgst með honum reglulega og á að koma aftur í rannsóknir í maí á næsta ári svo hann og reyndar við öll erum afsaplega ánægð með það og getum ekki annað en þakkað fyrir og notið lífsins
Það eru ekki allir jafn heppnir og hann. En ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili. HJ
29.10.2007 | 11:37
Hæ hó og jó...............
Góðan daginn og velkomin á fætur
Hvað haldið þið að hafið skéð í gærkvöldi? Mín brá sér á körfuboltaleik og var hann hin besta skemmtun þrátt fyrir óhagstæð úrslit hjá okkar mönnum enda var þetta allt saman dómurunum að kenna Er það ekki? Spyr sú sem litið veit? Nóg af íþróttum núna enda ekki mikið að tala um
Það hefur snjóað hérna og mikið gaman hjá mér Finnst það æðislegt þegar snjóar. Birtir yfir öllu. Og tími til að setja upp sólbirtugleraugu
Fannst skrítið þegar ég flutti hingað og "sumum" fannst það fyndið þegar ég talaði um sólbirtugleraugu
Hér er talað um sólgleraugu
Annað sem ég verð að nefna fyrst ég er byrjuð á annað borð það er þegar fólk á á norðulandi fer í bíó er talað um að hálfleikur sé þegar hér er talað um að það sem komið hlé. Bara smá pælingar um orðalag.
Fór út í morgun að keyra Ivan til dagmömmu Hann er eins og við flest í Fíragottsættinni morgunhress með meiru
Fannst það ókaplega fyndið og horfði mikið í kring um sig á snjóinn. Kannski verður hann eins og amma sín hefur gaman að þessu. Keyrði svo Gústa í vinnu. Fór þetta allt með léttum leik enda vön manneskja á ferð í snjó
Á mínum sumardekkjum á Subaru. Fór svo aftur út enda finnst mér gaman að keyra í svona veðri og finn mér upp alls lags tilefni tók myndavélina með og reyndi að fanga augnablikið
Pælið í því af hverju er sagt að fanga augnablikið? Getur einhver svarað því?
Vona bara að það verði svona fallegt veður áfram helst í allan vetur. Þetta minnir mann óneitanlega mikið á það sem framundan er Jólin Ég er dálitið eins og litlu börnin spennt fyrir þeim tíma og bíð með óþregju eftir að farið verður að spila jólalög í útvarpinu ætla að syngja hástöfum með alveg sama hvað hver segir
Meira að segja byrjuð að huga að gjöfum. Ætla svo að vera ýkt dugleg. Gera smá skraut sem á að príða sólpallinn minn. Svo auðvitað eru hin hefðbundnu verk hjá okkur konunum laufabrauðsgerð, aðventukansagerð. Get ekki beðið en verð samt að bíða vera róleg og þolinmóð
Horfi þess í stað út um gluggan minn og sé stór og falleg snjókorn falla til jarðar. Þessi sjón er náttúrulega bara falleg og ekkert annað. Er kannski orðin ansi væmin núna en mér er sama hvað öðrum finnst er sátt við lífið og tilveruna akkúrat núna
Verð svo að öllu óbreyttu að vinna um jólin og áramótin. En svona er það þegar maður velur sér að vinna við að hjálpa fólki og aðstoða það. Það eru nefnilega ekki allri svo heppnir að geta verið hjá sínum nánustu hvort sem er um hátíðir eða bara virkadaga. Vona minnsta kosti að geta gefið eitthvað af mér til þess að öðrum líði betur. Ætla svo að reyna að setja inn nokkrar myndir sem ég tók úti í snjónum í morgun. Ætla nú að fara að gera eitthvað áður en ég fer að vinna svo ég læt þetta duga i bili og kveð. HJ
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar