17.1.2008 | 17:04
Bókarlestur og leti
Góðan daginn góðir hálsar
Já það hefur bara verið leti í gangi hjá mér þessa dagana enda er ég að snjóa inni að ég held Hef ekki séð svona mikinn snjó í nokkra daga í einu síðan ég flutti hingað suður með sjó. Annars finnst mér þetta voða gaman að jeppast á mínum fjalla bíl
eða þannig hann kemst það sem ég ætla honum að komast og það er nóg fyrir mig
Hef svo bara verið að gera mest lítið vinna núna tvær næturvaktir og um helgina átti að vinna síðustu helgi var í frí þegar Anna systir koma og var hér svo núna er ég að borga þá vinnustundir til baka
Fer svo í vetrarfrí í feb og hlakkar ýkt mikið til að geta haldið áfram að gera ekki neitt nema slæpast er svo asskoti mikið fyrir það
Sökkti mér á kaf í bókarlestur um jólin og er núna að dusta rykið af gömlum bókum til að lesa finnst ég ekki vera að gera neitt þegar maður er bara að vinna og ekki í skóla
Las bókina ENGINN MÁ SJÁ MIG GRÁTA. Aron Pálmi. Barn í fangelsi eftir Jón Trausta Reynisson. Hún er mjög góð að mér finnst og snart mig mikið og skil en betur hvað það er gott að eiga heima á Íslandi og réttarkerfið hérna virðist vera barnaleikur alla vega miðað við kerfið í Bandaríkjunum. Við ættum stundum að vera meira meðvituð um hvað gott er að eiga heima á litla landinu okkar fróni og þakka fyrir það þó manni finnst stundum lífið ekki vera gott
Alla vega lenda unglingarnir okkar ekki í því líkum hremmingum sem þessi drengur lenti í í fangelsis vist sinni í hinni stóru Ameríku allt svo gott þar segja sumir og grasið gjarnan grænna hinum megin
Ætla svo að lesa í nótt á meðan hinir sofa og ég vaki í vinnuni bók sem heitir Allt hold er hey. Eftir Þorgím Þráinsson fékk hana í jólagjöf fyrir nokkrum árum síðan og las hana ætla að lesa aftur enda mjög góð bók þar á ferð. Jæja en það bara snjóar og snjóar og ég held áfram að syngja mokið mokið meiri snjó. Kveð að sinni. HJ
14.1.2008 | 14:54
Mokið mokið meiri snjó
Góðan daginn og velkomin á fætur
Bara svona af því að stóra bróður var tíðrætt um veðrið hénra á síðastu færslu minn ætla ég að tala um veðrið og íþróttir Veit að hann er tilbúin til þess
Já mínir menn sem eru grænir og glaðir tóku á móti KR í körfubolta í gærkvöldi og rassskelltu þá
Reynar hittum við Gústi nokkra leikmenn Grindavíkur sem voru á leið norður til leiks á móti Þór og skemmst er frá að segja að auðvitað bað ég þá fallega að vera góðir við Þórsarana eftir aftöku okkar manna á þeim og viti menn það gekk upp
Alltaf hlustað á mann
En eins og ég hef alltaf sagt logn og blíða hjá mér
Var nýkomin heim úr höfuðborginni þegar fór að snjóa og það snjóar en veit ekki hvar þetta endar
Þurfti að hafa fyrir því að moka ofan af bílnum eldsemma í morgun til að komast í vinnu og ég á mínum fjalla Subaru komst auðvitað allra minnar ferðar enda svo asskoti vanur bílstjóri á ferð þar að segja ég
Þannig að þeir sem eru að geyma fyrir mig snjó í frystikistunni sinni geta bara bætt honum við hjá sér
Svo náttúrulega bý ég svo vel að búa við eina af aðalgötunum í bænum svo rutt er snjónum af götunum og fyrir bílaplanið hjá mér en þá er bara eitt fara út og moka og leika sér sem er ekkert mál fyrir mig þó það nú væri enda Fíragott á ferð
Helgin var annars fín var að passa Ivan á laugardaginn meðan foreldrarnir hans fluttu sig yfir í Njarðvíkurborg. Anna systir eyddi helgini hérna í nammi áti og sjónvarpsglápi og var það bara ansi gaman enda veitti ekki af orkunni sem ég fékk til að moka kom í góðar þarfir
Yngsti sonurinn er svo byjaður hjá ökukennara og búin að fara í nokkra tíma og einn i dag sem er gott að venjast svona færi og fær vonandi(foreldrum sínum til mikilar gleði eða þannig) æfingarakstursleyfi innan tíðar. Jæja gott fólk læt þetta gott heita í bili og kveð. HJ
10.1.2008 | 21:39
Aftaka
Góða kvöldið góðir hálsar
Veðrið hefur verið með ólíkindum núna í kvöld en ég var beðin um að tala um veðrið það kom frá honum Palla stóra bró eftir nokkur sms í kvöld vildi hann ólmur vita hvernig veðrið væri hjá mér En nóg um það. Hef verið að vinna undan farið og lítill tími gefist til að blogga enda svo sem ekki mikið að ské hjá mér alltaf logn og blíða
Jæja en ég brá mér á körfuboltaleik í kvöld þar sem mættust lið Njarðvíkur og Þórs frá Akureyri og er skemmst að segja frá því að mínir menn úr Njarðvíkurborg unnu 139-90. Svona eins og sumir sögðu við mig hvar er gestrisin
ekki bragðdaufur leikur heldur aftaka
Reynar fannst mér þessi leikur ekki sá skemmtilegasti enda var fljótt ljóst hvert stefndi. En vona bara að mínir menn verði jafn grimmir og miskunalausir á sunnudaginn þegar þeir mæta KR
Jæja en nóg um íþróttir enda svo sem ekki mikill áhugamanneskja um það nema þegar kemur að körfubolta
Á morgun kemur svo Anna stóra systir hingað suður og eyðir helginín hérna við að hjálpa til við að passa og flytja nei djók
Aníta flytur á laugardag og er búin að fá fullt af góðum mannskap til að bera kassa en við ætlum að vera með Ivan á meðan verið er að bera inn kassa svo hann fari ekki óvart með í eihverri ferðin enda mikð að gera þessa daga við að skríða og rusla til
Jæja en nú er sól óðum að hækka á lofti og vorið að nálgast óðum
Sem betur fer ég leggst í hálfgerðan dvala í skammdeginu og verð nett ofvirk þegar sól hækkar á lofti enda tími til komin að vakna úr dvala
Læt nú þessu lokið að sinni og kveð. HJ
2.1.2008 | 19:25
Áramótaheit!!
Góða kvöldið góðir hálsar
jæja þá er áramótin búin með öllum þeim sprengjum og látum sem því fylgdi en nískupúkin ég horfði bara á hina sprengja upp öllum stærðum og gerðum af flugeldum
Kalkúnn var snæddur hérna en Aníta,Davor og Ivan Freyr borðuðu með okkur og reyndist maturinn hreint út sagt lostæti. Var að vinna reyndar en húsbóndinn og drengirnir sáu um að ausa yfir fuglinn á meðan
Síðan var horft á sjónvarpið skaupið fannst mér frábært en kannski er ég bara með svona lélegan húmor en hvað um það
Yngri kynnslóðin hélt út á lífið en Ivan Freyr gisti hjá ömmu og afa og svaf af sér allan hamagangin þegar landinn skaut upp og svaf bara vært
kannski sofið bara betur undir góðum undirleik
Kúturinn sá um að við svæfum ekki yfir okkur enda fór ég að vinna á nýrárskvöld
Var að tala við Hrafnhildi í síma áðan en Kristín litla var í aðgerð í dag það var verið að lengja sinar á báðum fótunum hennar og gekk aðgerðin vel tók um klukkutíma og var daman að vakna og öll að koma til en þau mega svo fara með hana heim í dag og verður hún í gifsi í sex vikur þessi elska mikið langt í lítið barn
Svo er ég bara að fara að setjast niður og ákveða mig með vetrarfrí en ég á rétt á því í fyrsta skiptið á ævi minni en svo á ég reyndar eftir helling af tímum af sumarfrí og er verið að athuga hvort það bætist við frí í sumar svo kannski vinn ég bara ekki neitt í sumar ligg bara í leti
Það er rétt trúlegt að ég geri það. Kona ein hjá svæðisskrifstofu sem ég talaði við spurði mig hvort ég kynni ekki að vera í frí og nota minn áunna rétt enda á ég helling inni góð spurning það hef svo sem ekki verið mikið fyrir að gera ekki neitt alla vega viðurkenni ég það ekki hér og aðrir sem hafa einhverja skoðun á því eru ekki á sama máli eru vinsamlegast beðnir um að segja ekki frá því hérna
Áramóta heit já ég strendi ekki neitt enda er þá ekkert sem ég þarf að hætta við og segjast ekki hafa staðið við nei og aftur nei. Ætla bara að vona að eitthvað af mínum draumum rætist langar að gera svo margt sem ég vil ekki upplýsa hérna. Læt vita ef eitthvað af mínum draumum rætist. Jæja en aðeins af öðru Aníta Davor og Ivan Freyr eru að fara að flytja eftir um tvær vikur og eru að færa sig um set í Njarðvíkurborg
Verð ábyggilega að vinna þá helgi eða kölluð út í aukavinnu svo ég slíti mér ekki út í flutningum
Nei bara að djóka enda sé ég ekki eftir að hjálpa þeim veit ekki hvar við værum ef þau væru ekki svona dugleg að hjálpa okkur við að flytja og mála enda er tengdasonur minn tilvonandi besti málari sem ég hef kynnst og sér ekki eftir því að eyða sínum litla frítíma í að mála fyrir Pétur og Pál
Jæja en svo var ég sko asskoti dugleg að taka upp síman og tala við vinkonur mínar sem búa úti á landi og ætla að reyna að vera duglegri við að hafa samband við þær jú hey þarna kom gott áramóta heit Læt nú þessari ritgerð minni lokið í bili og kveð. HJ
31.12.2007 | 12:07
Árið senn á enda
Góðan daginn og velkomin á fætur
Jæja þá er nú þessu ári senn að ljúka og nýtt ár í vændum með sínar væntingar. Ekki er nú auðvelt fyrir mig að rifja upp árið sem er að ganga í aldanna skaut enda er ég með teflon heila en ætla að stikla aðeins á stóru
Mitt helsta afrek á árinu var að útskrifast úr Borgarholtsskóla eftir tveggja ára nám sem félagliði og er bara ansi stolt af sjálfri mér fyrir vikið
Í byrjun árs eða í feb rétt áður en ég varð jafngömul og ég er í dag varð ég alvöru amma fékk myndarlegan strák frá dóttur minni
en hún Hrafnhildur fósturdóttir mín á tvö börn sták og stelpu sem búa núna í Las Vegas. Við hjónin afrekuðum það að fara erlendis saman í fyrsta skiptið okkar saman og héldum úti í hinn stóra heim Ameríku. Einn af mínum kærustu vinum var borin til grafar daginn sem við komum heim úr Ameríku hann Geiri minn og sakna ég hans verulega og vil óska vinkonu minni sem var eiginkona hans hún Gunna Vala velfarnaðar á nýju ári og hlakka til að heimsækja hana.
Stefnan á næsta ári er að fara aftur út en kannski ekki til Ameríku en mikið er um afmæli á komandi ári Gústi minn verður hálfraaldar gamall ásamt Palla bróðir en þeir eru svo samstíga að eiga afmæli sama dag
Gréta mákona mín varð einnig fimmtug á þessu ári. Stína mákona mín 40 ára og maðurinn hennar 60 ára og svo mætti lengi telja en ég sleppi því
Í sumar komu svo hingað til landsins Hrafnhildur með krakkana sína og sáum við hana Kristínu liltu í fyrsta skiptið þá og Iris frænka Gústa sem einnig býr í USA kom eftir 24 ár í heimsókn hingað og var það mjög gaman enda var ég að hitta hana í fyrsta skiptið
Okkar árlega fjölskyldumót var haldið af Palla og Margréti í skagafirði að Melsgili og var það vel heppnað og hin mesta skemmtun í alla staði takk fyrir okkur
Eflaust er ég að gleyma einhverju en það verður bara að hafa það
Ætla svo að enda þetta með að segja frá að á föstudaginn fórum við Gústi á körfuboltaleik í Grindavík þar sem þeir tóku á móti okkar mönnum í UMFN og skemmst er frá því að segja að mínir menn sigruðu og var þetta hin skemmtilegasti leikur. Vil að lokum óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla. Gangið hægt um gleðinar dyr í kvöld. Kveð að sinni HJ.
25.12.2007 | 16:42
Jóladagur
24.12.2007 | 12:18
Jólin
Ég vil óska öllum mínum ættingjum og vinum gleðilegra jólahátiðar og farsældar á nýju ári.
Jólakveðjur frá okkur heimilisfólkinu að Hringbraut 93 Reykjanesbæ
20.12.2007 | 14:11
Afslöppun
Góðan dagin góðir hálsar
Já það er óhætt að segja að þessi flotti sveinn sé bara í afslöppun og lætur ekk stress jólanna hafa mikil áhrf á sig. Hreinlega varð að setja inn mynd af honum í öllu stressinu sem fylgir þessa dagana
Hann er keyptur á ferð okkar um USA núna í haust. Fékk góða heimsókn í gær frá frænda mínum sem færði mér gjöf sem hann gerði sjálfur og gaf frænku sinni
Þessi flotta skreyting er eftir Ragnar Þór. Jói litli bróðir hringdi svo í mig og var mikið spjallað og sakna ég hans afar mikið á þessum tíma árs
Hann var nú svo elskulegur að kommenta hjá systir sinni og talar um hvað ég sé falleg og skemmtileg
Svo voru "einhverjir" sárir yfir því að þessi fegurð hefði ekk fylgt þeim eldri bræðrum mínum
Og setja gæsalappir við að ég sé falleg hvað er málið
Alltaf sagði mamma mér að ég væri hefðardrottning og ég sem trúi því
Nei æji bara að djóka fegurðin kemur að innan líka svo að þeir sem ekki bera hana utan á sér hafa hana þá að innan
Jæja en nóg um þessar pælingar mínar. Er komin í frí fram að aðfangadag svo ég ætla að reyna að gera eitthvað að viti en veit ekki hvað það á að vera
Kveð að sinni úr logninu og blíðunni hérna fallegt um að líta og gaman að vera til. HJ
17.12.2007 | 14:12
Engin hreyfing á loginu alla vega ekki strax
Góðan daginn og velkomin á fætur
Sumum finnst margt skrítið hérna suður með sjó. Þetta með lognið varir en þangað til að hreyfing kemst á það sem virðist ætla að vera í dag eða kvöld annars er yfirleitt alltaf lognmolla í kringum mig eins og flestir vita er ég ekki mikið fyrir að vera á fullu vil bara að hlutirnir séu gerðir strax og helst í gær og ekki seinna en það
Jæja en samt sem áður finnst mér bara gott að vera hér og líður vel og finnst gott að hafa kosið að eyða hluta af minn ævi hérna á suðurnesjum enda margt skrítið sem skéður hérna og fellur maður kannski bara inn í umhverfið þá
Jæja en í dag á hann Samúel þór frændi minn afmæli og er 16 ára karlinn til hamingju með daginn Sammi minn og veit ég að pabbi þinn og Björg gefa þér örugglega stóran harðan pakka
Nú styttist óðum til jóla og ekki nema vika þangað til
Okkur er boðið í skötuveislu til Óla bróðir Gústa og Maju konunar hans á sunnudaginn. Hef ekki vanist þessum sið fyrr en ég kynntist þessu hérna þegar ég var að vinn á vellinum var þetta árlegur siður og smakkaði ég skötu þá í fyrsta skiptið hún er allt í lagi einu sinni á ári en ekki mikið oftar
Sunnudaginn síðasta voru svo litu jólin hjá okkur á sambýlinu var eldaður kalkún sem bragðaðist hreint út sagt frábærlega fengu svo allir pakka ég fékk kaffipakka frá kaffitár hátíðarkaffi og könnu til að drekka herleg heitin úr.
Jólasveinarnir hafa lítið kíkt til mín en tveir hafa komið annar fór með jólapakk fyrir mig norður og hinn er væntalegur norður yfir heiðar á föstudaginn og tekur fyrir mig jólakortin maður verður nú að vera pínu skynsamur og nota þessa sveina og spara sér frímerkinn
Alltaf að græða eða þannig. Er svo á fullu núna við að pakka inn gjöfum og skirfa jólakort dugleg
Á svo bara eina vakt eftir til jóla en það er næturvakt og verð svo að vinna alla jóladagana og áramótin lika svo mér finnst ekkert leiðinlegt að eiga frí núna ætla svo að reyna að fara á aðventutónleika hef haft það fyrir sið mörg undarfarin ár og er það einn liður í aðventunni. Jæja en svo geta sumir kíkt í "kaffi" á reyndar hátíðarkaffi til tilbreytingar en Helga alltaf velkomin enda stutt að hlaupa út í sjoppu eftir öðru en kaffi. Læt þetta gott heita úr logninu á suðurnesjum. HJ
14.12.2007 | 12:45
Smá hreyfing á logninu hérna
Góðan daginn og velkomin á fætur
Já það er víst óhætt að segja að það sé smá hreyfing á logninu hérna Reyndar er það svo að það er snælduvitlaust veður hér. Ævar minn ætlaði að fara norður og sjá Óvitana en för hans festast vegna veðurs enda ekki neitt ferðaveður. Er reyndar búin að standa í ströngu það míglekur hérna í eldhúsinu og í þvottahúsinu var alll vægast sagt á floti svo að maður situr ekki auðum höndum við að vinda tuskur
Hélt reyndar að fyrir tveim dögum síðan að við myndum fjúka út í hafsauga en ekki varð ég síður smeik núna en þetta gengur yfir einhverntímann.
jæja en svo að öðru litlu jólin eru hjá okkur í vinnuni í dag það verður kalkúnn í boði og gjafir mikið gaman ég er á vakt í dag og alla helgina svo ég lendi í því að ganga frá eftir hina En ælti ég láti þetta ekki verða gott þarf að fara vinna bráðum og ná í barnabarnið í pössun. Kveð að sinni. HJ
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar