Sumarfrí

Góðan daginn góðir hálsarGrin

Jæja þá er víst best að vera ekki eftir bátur annarra og fara að halda þessari síðu útiTounge En maður er nú hálfgert utan velta hérna því að ekki kem ég til með að blogga um stjórnmál enda skil ég lítið í þeimWhistling En það er nú allt önnur ella. Já ég er komin í langþráð sumarfrí sem ég telst formlega komin í á morgun en í helgarfrí þangað tilWink Finnst það reyndar ekki leiðinlegt þar sem ég er búin að vera að vinna á fullu í 14 mánuði og búin að klára nám líka. Helgin hefur verið róleg fram að þessu enda erum við turtildúfurnar bara tvo heimaWhistling Strákarnir fóru í Þjórsárdal með vinum og foreldrum þeirra svo vel er hugsað um þau enda eru ekki aldurstakmörk þar eins og á sumum stöðum annarstaðar á landinu okkar fagraLoL Við erum að njóta þess að slaka á og gera sem minnst enda veður nóg að gera hérna í kotinu næstu daga. Hrafnhildur er að koma til landsins á þriðjudagsmorgun með bæði börnin sín og fáum við þá að sjá hana Kristínu litlu í fyrsta skiptið og hlakkar okkur mikið tilGrin Aníta og fjölskylda kemur svo heim sama dag bara um kvöldið svo að þá eru öll barnabörnin okkar saman komin í fyrsta skiptið sem okkur á nú örugglega ekki eftir að leiðast.Grin Annars er það svo að frétta að Ævar er komin með vinnu hjá DM í Garðabæ alla vega tímabundið og vonar hann til þess að fá svo vinnu með skólanum en DM er að flytja lager sinn frá Garðabæ hingað á völlinn. Svo er stefnt að því að fara norður yfir heiðar um næstu helgi og vera á fiskidögum á Dalvík og svo er handverkssýning á Hrafnagili svo af nógu er að taka. Helgin svo þar á eftir er afmæli hjá mágkonu minni og manninum hennar en samanlagt verða þau 100 ára núna í ágúst og septTounge Annað en sumir. Að síðustu er svo náttúrulega Ljósanótt sem er fystur helgina í sept og verður þá mikið fjör og mikið gamanWizard Jæja ég ætla að reyna að vera dugleg að henda einhverju inn hérna og standa mig eða hvað. Bið að heilsa í bili og kveð. HJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Mikið var að þetta fj... djók tók enda hjá þér, svo ég segi velkomin í bloggheiminn hjá blog.is. Þetta með Ævar hvaða fyrirtæki er DM ? er þetta kannski stytting á dem?

Páll Jóhannesson, 6.8.2007 kl. 17:05

2 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Já þetta fj..... djók tók enda en það tekur tíma að læra á þetta allt er ekki en komin með þá endalausu þolinmæði sem krefst þess að læra inn á þetta en vonandi tekst það fljótt. DM er dreifingarmiðstöð hjá Pennanum. Sama fyrirtæki og Gústarnir eru að vinna hjá.

Hrönn Jóhannesdóttir, 6.8.2007 kl. 21:08

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Þetta er sem sagt liður í heimsyfirráðum fjölskyldu ykkar?

Páll Jóhannesson, 7.8.2007 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 36308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband