Stjörnubjartur himinn

Komið þið sæl.

Svona hljóðar rás eitt á morganaErrm Hér gengur lífið sinn vana gang og allt í dúna logni eins og vera ber hjá mérGrin Jólafríð búið og allt að fara í fastar skorður finnst það nú stundum heldur leiðinlegt þessi vana gangur mætti alveg vera brokk eða stökkGrin En svona er bara lífið í kreppunni miklu en ég nenni svo sem ekki að velta mér mikið upp úr henni enda er það ekki mér að kenna að hún skall á okkurTounge Jæja en stundum gerast góðir hlutir sem betur fer og aldrei slíku vant gerðist það hjá mérErrm hélt að ég væri fallin í sálfræði og þyrfti að taka upp prófið og endurgera ritgerð sem ég reyndar gerði en svo geriðist undrið ég náði prófinu og fékk gott fyrir ritgerðina sem ég þurfti að lagfæra svo viti menn ég náði bjévítans sálfræðinniTounge Þurfti reyndar að gera aðra ritgerð upp á nýtt sem er í öðru fagi þroskaþjálfafræði og skila henni inn 23 jan svo nú er að krossa fingur og vona að það skili sér til baka með sömu niðurstöðum og gerði með hittBlush Strákarnir komnir á fullt í skólanum og litli drengurinn minn er svo að fara í bílpróf bráðum svo ég ætla að nota tækifærið á meðan og keyra eins og vitleysingur áður en ég legg bílunumCrying En hinn drengurinn minn lenti í því í siðustu viku að keyrt var á hann(bílinn) og bílinn hans skemmdist varð óökufær svo greyið er nú bara labbandi eða þannig hertekur bílinn minn sem ég ætlaði að nota til að spæna upp malbikiðWhistling Annars er voða lítið að frétta annars úr þessum rólega fallega og skemmtilega bæ mínum. Er að vinna núna á næturvakt en í fyrramálið fer ég heim að passa Ivan eða kannski bara sofna og hann passar migBlush Hann er nefnilega hættur hjá dagmömmu og er að fara á leikskóla í næstu viku svo hún amma ætlar að hlaupa undir bagga á meðan. Mikið er ég nú góð amma hahaGrin Ætla að hætta þessu bulli í bili og segi bara sofið rótt í alla nótt gude natten eine skattenSleeping HJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Stjörnubjart og dúna logn og alles..

Grats með sálfræðina þú stendur þig með príði í þessu sem og ömmuhlutverkinu...

kv til ykkar frá "litlu" dömunum mínum hérna úr Eyjum

Ásta Björk Hermannsdóttir, 16.1.2009 kl. 14:17

2 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Takk fyrir hrósið Ásta. Knúsaðu dömurnar frá okkur við söknum þeirra ansi mikið

Hrönn Jóhannesdóttir, 16.1.2009 kl. 18:58

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Blessuð vertu þú tekur þessi próf með einari eins og stundum er sagt. Ef þú ert hrædd um bílinn í höndum sonarins þá taktu bara einn kertaþráðinn úr sambandi og allur kraftur fer úr bílnum kv

Páll Jóhannesson, 17.1.2009 kl. 13:47

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Það er ekki spurning, þú reddar ritgerðinni fyrir 23 og færð gott fyrir. Bara að trúa vel á getu sjálf síns. Þú hefur bara gaman af Ivani. Kv.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.1.2009 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 36305

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband