Að vera tekin í bakaríð

Góðan daginn og velkomin á fæturSleeping

Það eru til ýmis máltæki og eitt af því sem ég hef upplifað undanfarið er að vera tekin í bakaríðDevil Skil reyndar ekki afhverju það er orðað svona. Þegar maður upplifir vonleysi yfir því að vera ekki nógu góður í einhverju sem maður tekur sér fyrir hendur er stundum sárt þegar svo einhver manneskja leyfir sér að taka einn úr stórum hóp og hreinlega valta yfir hanaCrying Hinir í hópnum sleppa sem betur fer þeirra vegna. Dálítið hallærislegt að upplifa svona þegar hlutirnir eru gerðir eftir formúlu sem á að fara eftir en svo allt i einu er henni breytt og akkúrat lendir maður í þvíTounge En lífið er ekki alltaf dans á rósum alla vega ekki hjá mér þessa daga nema þá kannski á þyrnirósumGrin Jæja best að hætta þessu væli enda nennir engin að hlusta þegar verið er að kvarta. Í dag á hún Hrafnhildur okkar afmæli hún er ábyggilega ný farin að sofa enda margra klukkutíma munur á sólarhringnum þar og hérGrin Svo á morgun eiga þeir félagar Ágúst og Páll afmæli Wizard Kemst því miður ekki í kaffi til stóra bró svo ég verð að láta mér nægja að fá kaffi og kökur hjá manninum mínumHeart Voða væmin núna. Er svo bráðum að fara á hótel með honum og svo að sjá einleikinn með Pétri Jóhanni sem heitir Sannleikurinn. Ætla reyndar að passa barnabarnið okkar hann Ivan núna um mánaðarmótin svo foreldrar hans geti farið að sjá þetta verk með Pétri. Læt þetta gott heita í bili enda að vinna og bíð eftir að komast heim að sofa fyrir næstu næturvakt. Kveð að sinni. HJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef maður er tekinn í Bakaríið af einhverjum er þá ekki bara málið að drífa sig heim og baka brauðið sjálfur. Held að þú bakir miklu betra brauð en þessi bakari þarna sem er að gera þér lífið leitt. Já málshættir eru oft svolítið bjánalegir en hugsunin og samlíking oft ótrúlega sönn. hafðu trú á sjálfri þér hvert svo sem verkið er, ekki nóg að aðrir hafi trú á þér ef þú hefur hana ekki sjálf. Njótið svo dagsins á morgun og ohhh.... á Hótel !!!! mundu að gleyma náttfötunum og svo þarftu nottlega góða hvíld. (þarna hvíldarstellingin góða) og stykkið á örugglega ekki eftir að valda ykkur vonbrigðum ,, knús í Keflavíkina

Björg (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 11:00

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Gott ráð hjá Björgu ,,drífa sig heim og baka brauðið sjálfur...." ég ætla baka pönnukökur af tilefni morgundagsins og sitthvað fleira í boði bakarameistara heimilisins. Verst að þið skulið ekki geta verið hér. Yljum okkur við frábæran afmælisdag í fyrra. Frábær ferð mikið væri ég til í að endurtaka leikinn aftur.

kv úr kuldanum 

Páll Jóhannesson, 12.2.2009 kl. 12:33

3 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Til hamingju með öll afmælis"börnin" & hafið það sem allra best á morgun & auðvitað líka á hótelinu

Kuldakveðjur frá norðrinu

Dagbjört Pálsdóttir, 12.2.2009 kl. 13:26

4 identicon

hæ fór að hugsa um þetta orðatiltæki, jú deigið er lamið og hnoðað, og já, æ Hrönn. stundum er maður bara svo óheppin að fá ranga athygli,

hefur í raun ekkert með þig að gera

heldur þann sem hagaði sér svona

hugsaðu um það,

knús

helga

helga (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 36305

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband