24.11.2010 | 13:39
Þessi gamli bær
Góðan daginn og velkomin á fætur
Þá er vetur kongur gengin í garð rétt eina ferðina enn. Skil ekki af hverju hann getur ekki sleppt því svona einu sinni Er voða lítið fyrir þennan árstíma þótt svo að ég sé fædd að vetri til held að það hljóti að hafa verið misskilningur Annars er þetta bara gott er byrjuð að hlakka til komandi sumars og fer að telja niður fyrir það. Lífið hérna suður með sjó gengur sinn vanagang lítið breytt dagarnir svo líkir hver öðrum vinna læra sofa...... kannski breytist það einhvern tíman. Er að fara í smá vetrarfrí sem mér finnst nú ekki voða leiðinlegt enda getur maður stundum orðið þreyttur á að vinna og gera ekki neitt Bara að vinna læra vera húsmóðir amma mamma eiginkona frænka dóttir vinkona þetta er ekki svo mikið verk nema ef hægt væri að bæta nokkrum klukkutímum við sólarhringinn og hafa sumar allan ársins hring þá væri ég svo svakalega ánægð Núna styttis í að yngsti sonurinn og næst elsta barnabarnið eigi afmæli en það er núna næstkomandi laugardag 27 nóv en þá eru 19 ár síðan að litli prinsinn minn fæddist hérna í þessu gamla bæ okkar Prinsessan fæddist aftur á móti í Los Angeles og býr núna í Las Vegas svo hún er langt í burtu frá okkur en við sjáum hana reglulega þegar við tölum við þau í tölvunni í gegn um skype það er bara snilld Langað bara að láta frá mér heyra og segja að allir eiga að vera þeir sjálfir koma fram við aðra eins og þeir vilja láta koma fram við sig. Kveð í bili. HJ
14.9.2010 | 11:46
Haustið að koma :)
Góðan daginn og velkomin á fætur
Ekki er hægt að segja að maður bloggi eins og þeir hörðustu ónei. Jæja en svona er þetta bara stundum er ekkert sem hægt er að skrifa um allt snýst núna bara um að vera virkur á facebook. Þar eru allir eða í það minnsta margir og segja frá sínu daglega lífi ætli nokkur sé orðið lengur að blogga nema með nokkura mánaða fresti eins og ég En sumarið leið allt of hratt eins og venjulega skil þetta bara ekki. Fór nú reyndar nokkrar ferðir norður yfir heiðar. Fyrst var það brúðkaup litla bróður síðan smá tiltekt hjá okkur systrunum hjá mömmu og pabba og síðan en ekki síst var svo þriðja ferðin til að halda upp á afmæli pabba sem varð 80 ára og mamma fékk að fljóta með en hún varð 75 ára. Veislan var alveg frábær góðar veitingar og skemmtiatriðin ekki síðri enda heimatilbúin Veislustjórar voru Telma frænka og Palli bróðir en þeim finnst nú ekki leiðinlegt að tala og vera í sviðsljósinu Jæja en þetta var virkilega gaman. Fórum svo víðar í Vaglaskóg hitti þar kæra vinkonu mína einnig brugðum við okkur í strætó en æskuvinkona mín var að keyra strætó í sumar svo við fórum útsýnisferð með henni og einnig kíktum við á kaffihús Önnur vinkona mín sem býr þarna kom í kaffi og áttum við yndislega stundir saman takk stelpur Brugðum undir okkur betri fætinum og fórum á fiskidaginn mikla á Dalvík hitti þar buns að fólki og gamlar vinkonur var frábært að vera þar Einnig var haldið til Siglufjarðar að hitta ættingja einginmannsins fórum ásamt systur hans mökum og börnum fengum frábærar móttökur og ekki skemmdi veðrið fyrir okkur Heimsóknir til ættingja og matarboð voru nátturulega á boðstólnum enda fækkaði ekki kílóunum í þessari ferð það er nokkuð ljóst Passaði svo barnabarið hann Ivan Freyr í viku á meðan leikskólinn hans var í frí og mamma að vinna við fórum víðar og áttum yndislegan tíma saman Jæja strákarnir fóru með í tvær ferðir norður og held ég að þeir hafi átt góðan tíma þar. Annars er af þeim að frétta að þessir duglegu drengir mínir eru í skóla og vinna með honum hörkustrákar á ferð Við hjónin fórum í eina útilegu gistum í gömlu góðu tjaldborgar tjaldi á laugarvatni í þessu líka flotta mæjorka veðri Fórum svo reyndar í nokkrar dagsferðir hingað og þangað aðallega þangað En núna þegar hausta tekur verður hversdagsleikinn aftur og lífið fer í nokkuð fastar skorður vinna læra sofa og eta Mætti reyndar sleppa því að éta enda sést það alveg á manni Vona bara að veturinn verði góður með bóngóblíðu og helst litlum sem engum snjó og líði jafn hratt og sumarið leið hjá þá verður stutt að bíða eftir næsta sumri læt nú þessu rugli og bulli lokið í bili og kveð HJ
21.6.2010 | 20:08
Sumarfrí
Góða kvöldið góðir hálsar
Jæja þá er maður loksins komin í langþráð sumarfrí Annars hefur verið nóg að gera brá mér norður fyrir heiðar á gamlar æskuslóðir um hvítasunnuhelgina en þá var brúkaup hjá yngsta bróðir mínum honum Jóa Mar hann gifstist ástinni sinni henni Björg falleg athöfn sem haldin var í Lögmannshlíðarkirkju og veislan svo í skíðaskálanum í Hlíðarfjalli var margt um mannin og yndislegt að vera hitta ættingja og vini Eftir hvítasunnuhelgina komu svo mamma.pabbi Anna systir og Ragnar til Reykjavíkur og dvöldu þar í nokkra daga og eyddi ég nokkrum dögum með þeim í búðarráp og fleira hitti svo vinkonu mína að norðan dóttir hennar og barnabarn sem var bara gaman Við fórum svo í Kjósina til Dóra bró og Ingu ásamt mömmu pabba Önnu og Ragnari grilluðum saman horfðum á Evrovision skemmtileg stund með þeim og höfðingar heim að sækja Síðan lá leið mín á jurtanámskeið sem tekur hug minn allan núna svo í sumar verð ég úti í móa að týna jurtir og gera krem og seyði ekki leiðinlegt það nei Um síðustu helgi brugðum við okkur hjónin svo í dagsferð um suðurlandið fórum á Þingvelli Laugarás Þjórsárdal sem við stoppuðum hjá stínu mágkonu og Eysteini þar var grillað og spjallað í góðu yfirlæti síðan lá leiðin heim komið við á Selfossi og Eyrarbakka keyrt svo um þrengslin heim týndi smá af jurtum á leiðinni sem ég er búin að búa til seyði úr til drykkjar meinhollur skratti En um næstu helgi eiga svo tvö af börnunum mínum afmæli Aníta verður 28 ár og Ævar 20 ára á laugardaginn mikið líður nú tíminn hratt Ævar ætlar að bjóða til grillveislu ásamt Lilju kærustu sinni og Aníta heldur upp á sitt líka en svo um kvöldið ætlum við amma og afi að leyfa Ivani að gista hjá okkur í tilefni dagsins og njóta þess að vera með guttanum okkar En svona í tilefni dagsins í dag en núna eru sumarsólstöður eru nákvæmlega 7 ár síðan hún amma mín elskulega Anna Ólafsdóttir lést minning hennar er ljós í lífi mínu Læt þetta nú gott heita í bili og kveð. HJ
27.4.2010 | 10:27
Jibíjei jibjibííjei
Góðan daginn og velkomin á fætur
Jæja þá er komin þriðjudagur og mánudagurinn búin því lík speki ha Gærdagurinn fór meira og minna í að sitja við tölvuna frá kl 9-15 en ég var að taka lokapróf í félagsfræði og viti menn náði en veit ekki strax lokaeinkunn hjúkk Ekki gæti ég hugsað mér að vinna við það að sitja allan daginn við tölvuna var orðin ekki smá þreytt tók mér reyndar smá pásu til að næra mig. Nú styttist í minn uppáhaldstíma sem er sumarið held að það sé á næsta leyti alla vega komið brum á trén og páskaliljurnar í blóma ekki seinna vænna enda páskarnir búnir fyrir nokkru. Er búin að setja nokkrar kryddjurtir í potta hérna inni hjá mér og bíð spennt eftir að sjá hvað kemur skildi koma krydd eða hvað alla vega ekki í baukum haha. Myndavélin mín er búin að syngja sitt síðasta svo lítið verður um myndir hérna inni en hver veit læt aðra um það sem eru líka miklu betir myndasmiðir en ég og með flottar græjur kíki reglulega inn hjá honum en þeir sem ekki átta sig á um hver ég er að tala þá heitir hann Páll Jóhannesson og er stóri bróðir minn enda á ég bara einn minni Alla vega á hæðina held ég slá þeim öllum út hvað varðar hina hliðina á stærðinni En svona er nú bara Ísland í dag alla vega hér á suðurnesjum. Þótt að hlutirnir fari ekki alltaf á þann veg sem við óskum eftir er bara eitt til ráða að halda brosinu það skilar sér til baka með tímanum Langar ekki að tala um sorgina hún knýr dyra hjá öllu einhvern tímann en stundum kannski miklu fyrr en fólk reiknar með alla vega þegar ungt fólk í blóma lífsins er tekið burtu en þá sitja vonandi eftir góðar minningar sem fólk ætti að njóta og hugsa vel um hvert annað. Nú styttist í að sumarfrí fari að bresta á hjá manni og ferðaáætlun sumarsins verður hérna á suðvesturhorninu aðallega enda margir fallegir staðir sem hægt er að sækja heim. Hygg reyndar á að fara tvær ferðir út á land. Svo nú er um að gera fara taka fram tjaldið frá Seglagerðinni Ægir og athuga hvort það séu til vindsængur og dót til að hella upp á kaffi og þá er maður tilbúinn fyrir sumarið. Jæja læt nú mínum hugrenningum lokið í bili og kveð. HJ
24.4.2010 | 17:15
Já sæll
Góðan daginn góðir hálsar
Það er óhætt að segja að bloggið hefur setið á hakanum síðustu mánuði hjá mér Það er alltaf sama sagan að afsaka sig og segja að það sé engin tími til en það er bara hvít lygi Héðan er allt gott að frétta allir sprækir og hressir svo ekki sé meira sagt Yngsta barnabarið er búið að fá nafn en ekki búið að skýra hann Róbert Hilmar á hann að heita kappinn sá orðin frægur lék í síðasta þættinum af Rétti sem sýndur var á stöð 2 síðasta sunnudagskvöld flottur þar Og svona til að upplýsa um hlutverk hans lék hann nýfæddan sták og var sjálfur bara 8 daga gamall Sumarið er komið alla vega á dagatalinu með sínum yndislegu randaflugum mér til mikillar ánægju eða þannig Annars er gæludýr á heimilinu núna það er hann Oddur kanina og hefur en hann er sonur Ævars og Lilju ansi loðinn og krúttlegur. Jæja en núna er komin spenningur hjá mér skólinn að taka enda þessa önnina og er ég ansi fegin þegar mánudagurinn er á enda en þá er lokapróf og mín ætlar að gera sitt besta Að lokum vil ég óska öllum gleðilegs sumars og takk fyrir veturinn. Kv HJ
15.1.2010 | 17:13
Blogg leti :(
Góðan daginn og velkomin á fætur
Já það er óhætt að segja að blogg leti hefur verið að hrjá mig undanfarið loks þegar flensa og annað fór þá kom þetta í staðinn En svona er nú Ísland í dag með allri sinni dýrð. Árið sem var að líða var að ég held bara nokkuð gott svona að því sem ég man enda ekki sú minnugasta sem ég veit um Núna bíð ég bara eftir sumrinu og öllu því sem að fylgir og verður þá bara gaman En svona til að segja einhverjar fréttir þá fæddist nýr fjölskyldumeðlimur 28 des en þá eignaðist Ágúst yngri og Magga kærastan hans dreng hann dafnar vel og er búin að fá sitt fyrsta hlutverk í kvikmynda bransanum leikur í þáttum sem verða sýndir á stöð2 og heitir Réttur verður gaman að sjá hann þar Annars gengur lífið sinn vanaganga vinna skóli og svo bara chilla eða þannig Hrafnhildur kom til Íslands í Des með krakkana sína þau áttu jólin hérna með okkur og áramótin líka voða gaman hjá þeim að sjá allar sprengjunar og allt sem því fylgdi. Sjálf átti ég vægast sagt skrítin áramót endaði á slysó fékk hólk af ragettu í anditið og endaði með bólgið nef og andlit og miklar blóðnasir en sem betur fer fór þetta ekki í augun svo ég slapp með skrekkin Er að hugsa um að fá mér hjálm eða bara halda mig innandyra næst Áramótin voru samt fín vorum hjá Anítu Davori Ivani Birnu og Emelíu og horfuð á skaupið sem var að mínu mati mjög gott. Jæja læt þetta duga í bili og kveð. HJ
20.11.2009 | 09:42
Stríð á hendur haustflensum
Góðan daginn og velkomin á fætur
Það er með ólíkindum hvað maður getur tekið við af flensu skít og verið lengi að ná þessum fjanda úr sér gafst upp núna eftir þriggja mánaða stríð og fór til læknis sem ég er nú ekki vön að gera nema þegar allt annað er búið að reyna Var komin með lungnabólgu og eyrnabólgur sem vonandi eru nú að syngja sitt síðasta og hverfa héðan. En nú styttist til jóla og þá verður gaman margt um mannin en Hrafnhildur kemur upp til Íslands um jólin með krakkana sína Og stoppar eitthvað fram á nýtt ár. Svo er von á fjölgun hérna í fjölskyldunni í des svona rétt fyrir jól eða eftir jól spurningin er hvort nýjasti meðlimurinn vilji sýna sig fyrir eða eftir jól kemur í ljós Mamma og pabbi komu hingað suður um daginn og voru í viku skiptu sér niður á okkur systkinin og var yndislegt að fá að hafa þau hérna Það var farið í bæinn skoða í Kringlunni og Ikea mamma fór til læknis. Keyrði með þau Vatnsleysuströndina á leið okkar í Mosó pabbi var að fara í fyrsta skiptið þessa strönd og hafði gaman af Einu hef ég verið að velta fyrir mér hvað þarf maður að æfa mikið til að fá svona sixpack eins og líkamsræktar fólkið bara spyr. Er búin að vera með magaæfingar mörgum sinnum á dag og líka á nóttunni og ekkert gengur Hvað þarf ég að hósta marga mánuði í viðbót svo ég verði stælt Ólöf frænka kom hérna í heimsókn til okkar svona áður en hún flytur aftur norður í heiðardalin sinn og var gaman að fá hana "Litli" bróðir kemur svo suður með sinni tilvonandi konu núna í des og hlakkar mig mikið til að hitta þau fá að sjá framan í þau svona rétt fyrir jólin er manni mikils virði Þá er bara eitt eftir fara að hasla sér í að setja upp jólaljós og baka enda á litli prinsinn á heimilinu afmæli núna 27 nóv verður þá 18 ára Finnst svo stutt síðan að hann fæddist trúi varla að það séu bráðum 18 ár síðan en sama dag á hún Kristín okkar afmæli og verður þá 3 ára svo mikið er að gerast þessa næstu daga Við hjónin fórum í bíó um daginn að sjá myndina Jóhannes og var hún mjög góð sá alveg fyrir mér að þetta hefði geta átt við mann mér nákomin og hló mikið enda sá ég hann alveg fyrir mér og skondna við það hann heitir líka Jóhannes Jæja þetta fer nú að verða gott í bili og kveð. HJ
14.10.2009 | 09:00
Að setja sér markmið
Góðan daginn og velkomin á fætur
Var að velta því fyrir mér hvort fólk væri almennt hætt að blogga og allir komnir á facebook Stend reyndar í þeirri trú að það sé ekki allra að vera þar og skoða fór sjálf þar inn og sat þar lengi föst en í dag er ég ekki eins dugleg að fara á facebook og finnst gaman að rölta um blogg heima Sagði frá því í síðustu færslu að við hjónin ætluðum á Hótel en ekkert varð úr því þar sem ég lagðist í annað skiptið á stuttum tíma í bælið með þessa svæsnu flensu og eldri strákurinn lá einnig fárveikur heima En hótelið bíður betri tíma svo var bara þessi helgi held ég ekki ætluð okkur vegna ófyrirsjáanlegra atvika sem komu upp. Fyrir tæpu ári síðan setti ég mér markmið sem þokast hægt og sígandi í rétta átt. Hélt reyndar að það myndi taka stuttan tíma enda er ég dálítið óþolinmóð það sem á að gera í dag ætti helst að hafa gerst í gær En að kenna gömlum hundi að sitja er að takast hehe. Það máltæki hefur komið mikið á óvart hérna hjá mér undanfarið Einginmaður minn tók sig til og skellti sér á matreiðslunámskeið og viti menn hefur tvisvar sinnum eldað einn og óstuddur síðan svo að undur og stórmerki gerast enn af öllu átti ég sko ekki von á þessu Hann skellti sér svo á útskurðarnámskeið sem honum finnst mjög gaman á og á sko vafalaust eftir að búa til flott listaverk Þessi árstími er oft svo skrítinn veðurfar með ólíkindum og aldrei að vita hvernig maður á að fara klæddur út í regngalla kuldagalla eða stuttbuxum kannski svolíið ýkt en allt í lagi með það Ég er strax farin að hlakka til sumarsins sem kemur eftir nokkra mánuði er meira fyrir þann árstíma Er kannski kaldhæðni í því þar sem ég er fædd að vetri til á einum óveðursældasta mánuði ársins En maður ræður víst ekki sjálfur hvenær maður fæðist svo ég get ekkert að þessu gert. Jæja en hvað um það svona er bara Ísland í dag. Kveð að sinni. HJ
27.9.2009 | 12:49
Haustið
1.9.2009 | 22:13
Fallegir litir
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar