16.3.2009 | 13:36
Hótel Jörð
Hótel Jörð
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir sem ferðalaginu kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða.
En það er margt um manninn á svona stað
og meðal gestanna er sífelldur þys og læti.
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.
En þó eru margir sem láta sér lynda það
að lifa úti í horni óáreittir og spakir,
því það er svo misjafnt sem mennirnir leita að
og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir.
En mörgum finnst hún dýr þessi hóteldvöl
þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða.
En við sem ferðumst eigum ei annars völ,
það er ekki um fleiri gististaði að ræða.
Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn
og viðbúnaður er gestirnir koma í bæinn.
Og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn,
en áhyggjan vex er menn nálgast burtferðardaginn.
Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss
að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss,
er dauðinn, sá mikli rukkari, rétti oss
reikninginn yfir það sem skrifað var hjá oss.
Þá verður oss ljóst að framar ei frestur gefst
né færi á að ráðstafa nokkru betur.
Því alls sem lífið lánaði dauðinn krefst
í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur.
Tómas Guðmundsson
Hef mikið verið að velta þessu ljóði fyrir mér og en ekki komist að niðurstöðu Af hverju sumir en ekki aðrir þurfa að kveðja þennan heim snögglega og jafnvel án undirbúnings það er stór spurning sem örugglega aldrei koma svör við. Í ofangreindu kvæði er talað um að sumir kvíði fyrir þessu og aðrir sem ferðalag þetta þrá. Já örgglega er það svo að sumir þrá en aðrir kvíða þá held ég að þeir sem standa fólkinu næst sem er að kveðja séu þeir sem kvíða
Æj veit svo sem ekki hvernig ég get tjáð mig um sum mál án þess að upp komist um hverja maður talar og í þessu tilviki sem ég er að pæla núna þá er það svo að ég vil ekki að upp komist um hvern mínar pælingar eru
En oft koma skrítnar hugsanir upp í hausinn á manni. Önnur pæling er sú að oft er talað um að fólk sé með ýmsa ósiði svo sem drekka áfengi, reykja og borða óhollan mat hjálpi fyrir að kallið komi of snemma. Hm en skrítnasta við þetta er að þó fólk geri ekkert af þessum ósóma þá sleppur það ekki. Man eftir einu maður sem drakk mikið hérna í denn tók sig til og hætti viti menn stuttu seinna dó hann og gárungarnir sögðu þá hann dó úr þurrki
Hef velt þessu fyrir mér lifi ég eitthvað lengur ef ég verð eins og tannstöngull í laginu hætti að reykja og smakka áfengi er ég þá save
Veit ekki held svei mér þá að það skipti ekki nokkru asskotans máli hvað ég geri. Jæja ætla að láta þessu hugrenningum mínum lokið í bili og fara að stunda vinnu sem ég annars nenni varla og skirfa niður óskir mínar um sumarfrí sem ég bíð spennt eftir og vona að ég geti notið. Kveð að sinni. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er ekki gott ef það er gert í hófi, líka hófið sjálft? Um að gera setja niður sumarfríið sem fyrst, átt þú ekki að stjórna fjölskyldumóti í ár? hvar og hvenær verður það?
Páll Jóhannesson, 16.3.2009 kl. 14:30
Ég mæli nú með því að fólk hætti að reykja, smakki áfengi í hófi og borði hollan mat. En að verða eins og tannstöngull mæli ég ekki með. Sjálf hugsa ég um hvað ég innbirgði af mat, og fæ það í bakið ef ég er að sukka í sætindum og skyndibitum. Hafðu það gott og kveðjur héðan úr fannhvíta staðnum.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 16.3.2009 kl. 17:27
Hæ, mín skoðun er sú að allt sem fer vel í okkur er fínt, skítt með boð og bönn, reglur eru settar til að brjóta þær, ekki satt ?!
helga (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 23:16
Djúp !!!
If you obey all the rules
you miss al the fun.
Katharine Hepurn
Þetta eru mín heilræði og ég mæli með að fólk tileinki sér þau sem allra fyrst
Björg (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 10:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.