26.3.2009 | 15:10
Er vorið að koma
Pæling ætli vorið fari nú að láta sjá sig ég alla vega vona það svo ég vakni nú af mínu langa vetrardvala enda tími til komin
Lauk í gær við námskeið sem ég fór á og heitir Virkjum hugmyndir til framkvæmda og eitt orð yfir það frábærlega gaman
Lokaverkefnið í mínum frábæra hóp var viðskipta hugmynd um að hefja ræktun á Rabbarbara
Fengum reyndar öll frábæra dóma og viðurkenningarskjöl að launum. Er svo að fara á annað aðeins óskyldara en kannski þó ekki svæðisþekking á Reykjanesi ferðakynning hlakkar mig óskaplega mikið til að fara á það
Annars er svo sem ekki mikið að gerast hérna á suðurnesjum lífið gengur sinn vanagang og maður er ótúrlega heppin að vera með vinnu
Annars eru breytingar framundan hjá mér með vinnutíma það á að taka af mér næturvinnu. Við sem höfum lært eitthvað og erum ekki á sömu kjörum og þeir ófaglærðu fáum ekki að vinna næturvinnu það er ódýrara að borga þeim sem hafa minni laun næturvinnu. En svona er það bara og maður verður að bíta í það súra epli
En svona í sannleika sagt er mikið til í þessu og fyrir mína hönd er ég svo sem fegin enda á ég frekar erfitt með að geta hvílst eftir næturvakir og vaki oft í nokkra sólarhringa áður en mér tekst að sofna en bráður verður þetta úr sögunni hjá mér alla vega
Bíð svo núna bara eftir að sumarið gangi í garð og þá fer maður í gott sumarfrí
Fórum svo hjónin um síðustu helgi á árshátíð hjá SMFR sem er minn vinnustaður þetta var haldið í Perlunni og var fínt fyrir utan matinn sem var vægast sagt vondur og sýnishorn af mat komum við í sjoppu á heimleiðinni og fengum okkur samlokur sem smökkuðust eins og stórsteik miðað við það sem boðið var uppá fyrr um kvöldið hef sjaldan séð eins mikið eftir peningunum eins og þarna
Svona er Ísland í dag. Læt nú þetta gott heita í bili og kveð. HJ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Hrönn Jóhannesdóttir
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Flottir tenglar Flottir tenglar
- Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið Flott síða
Fólk
Litlu krílin
Börnin
-
Camilla Rós
Camilla Rós -
Birna og Emilia
Birna Marija og Emilia Hrönn -
Jón Páll
Jón Páll Jóhannsson -
Elín Alma
Elín Alma Jóhannsdóttir -
Margret Birta
Margret Birta Jóhannsdóttir -
Sólrún Brynja
Sólrún Brynja -
Kristín Rae
Kristín Rae Baran -
James Haukur
James Haukur Baran -
Ivan Freyr
Ivan Freyr Lucic
Vinir og kunningjar
Hinir og þessir blogga
-
Ragnar Þór
Ísland er best -
Inga
kærastinn minn, hann dín -
Helga vinkona
stormur hvín í kjúkum -
Helga og Einar
isf2.bloggar.is -
Nýja síðan hennar Döggu
LITLA FJÖLKYLDAN -
Ellý vinnufélagi
Velkomin -
Margith og Vigfús
Okkara síða -
Villa vinnufélagi
Heimurinn minn í máli og myndum -
Sammi frændi
Funny photos -
Karen
HUGSANIR MÍNAR OG PÆLINGAR
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
úllala,,, þú bara bráðum heima allar nætur hjá honum Gústa þínum. Mikið verður hann glaður. Það er þá allavega eithvað jákvætt við sparnaðinn hjá hinu opinbera. Allir þurfa að taka á sig eithvað en gott að hugsa hvað kemur í staðinn. Góð hvíld á hverri nóttu hjá þér.
jamm ,, vorið örugglega á leiðinni þarna hinumegin við hornið. hérna hefur snjóað aftur og ekkert vorlegt að horfa út um gluggann á þetta hvíta kalda og blauta út um allt. En það er hreint og bjart að sjá allaveg.
Flott námskeið og skemmtilegt hjá þér að taka þátt í svona, spennandi og áhugavert efni sem er verið að höndla með greinilega. hmmmm Rabarbara ræktun. líst vel á það
Rabarbarakveðja til ykkar !
Björg (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 19:50
Er svo ekki bara sungið til skiptis ,,Í sól og sumaryl...." eins og Bjarki forðum og svo þegar rabbabarinn mallar í pottunum rokkar þú með laginu ,,Rabbabara Rúna....."
Páll Jóhannesson, 26.3.2009 kl. 23:17
Hæ, veistu, flott að hætta á næturvöktum, fer illa með okkur,
heh, sammála með eitt, betra að borða á Múlakaffi, þar fær maður mat á diskinn, ekki svona snobbstað með sýnishornum, gott að sjoppan var opin maður, bros
helga (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 12:56
Ja -hvað er að heyra, þetta með matinn, veistu ekki að það er komin kreppa og allir verða að spara og veitingarstaðirnir líka. Svona er Ísland í dag. Kveðja héðan úr snjónum.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 29.3.2009 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.