Jólafrí

Góðan daginn og velkomin á fæturSleeping

Þá er loks að koma að því að ég fái langþráð jólafríGrin Undanfarin fjögur ár hef ég verið að vinna jól og áramótTounge en eftir rúman klukkutíma er ég komin í frí til 28 ekki slæmt það er núna að enda seinni næturvaktina mín vinn svo tvær á milli jóla og nýjaárs og komin í tveggja daga frí um áramót kl 8 á gamlaársdagGrin Annars gegnur lífið sinn vanagang hérna snjór og voða jólalegt en svo er spáð að snjólaust verið um jólin það kemur í ljósCool Karlarnir mínir komnir í jólafrí í skólanum og gekk vel. Fór að hitta ólöfu frænku og ætlar hún að vera jólasveinninn minn í árGrin Gott að eiga góða sveina að. Oft kemur það fyrir að maður rifjar upp eitthvað úr barnæsku sinni sem tengist jólunum. Man eftir því að þegar var verið að keyra út jólakortum var alltaf á vissum stöðum sem við fengum eitthvað gott í goggin systir ömmu okkar gaf okkur alltaf súkkulaði þegar við fórum með jólakort til hennar og á öðrum stað hjá frændfólki fengum við mandarínur eða appelsínur og fannst þetta voða gott og skemmtilegtGrin Svo minnir mig að á jóladag mátti ekki spila en það kom fyrir að við fengum einhver spil sem okkur langði voða mikið að prófa og urðum að gera það áður en að jóladagur rann upp og svo eftir hann en oft var beðið með mikilli eftirvæntingu að við gætum hafist handa við að spila og frændi heitinn á Ljósstöðum var alltaf til i spil við okkur systkininGrin En alla vega man ég þetta svona. Svo var bara leikið sér lesið og mulað á laufabrauði sem notað var sem snakk. Ekki var hlaupið á milli húsa á aðfangadag eftir að hátíðin gekk í garð. En svo var oft spennandi að hitta krakkkana í hverfinu og skiptast á að segja hvað við fengum í jólagjafir enda  á þeim tíma vorum við krakkarnir í hverfinu oft öll saman í hóp í leik enda nýtt hverfi þá og mikið hægt að gera sjaldan setið auðum höndum nóg um að vera við og víðáttan mikil stutt í sjóinn til að týna þar allslagt dót ein og krossfiska til að þurrka og ýmislegt annað sem endað svo í herberginu manns með ýmsu öðru dóti. Í dag held ég að lítið sé nú um það að börn leiki sér úti og þurfið að draga þau inn enda svo sem ekki nema von það er alls staðar byggt þar sem eitthvert autt svæði er til staðar. En læt nú þessu lokið í bili og kveð. HJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Hrönn og til hamingju með að vera komin í jólafrí. Já það fer oft ýmislegt að gerat í kollinum þegar jólin nálgast. En veistu að hérna á AKureyri er ennþá heilmikið um að krakkarnir séu úti að leika og ég mjög oft í þessari aðstöðu að þurfa að draga yngsta soninn inn úr snjónum eða hinum ýmsu boltaleikjum úti á skólavelli þar sem sparkvöllurinn og körfuboltavöllurinn er óspart notaður. En kanski stærsti munurinn að krökkum dugði smá grasbali f.fótboltavöll og peysurnar notaðar til að marka f.mörkunum en í dag eru þetta gerfigrasvellir og ef þeir eru uppteknir er ekki hægt að spila bolta... annars hafðu það gott í fríinu elskan mín og njóttu

Björg (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 13:04

2 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Gott að þú ert komin í jólafríið og njóttu vel. Ekki gleyma jólaboðunum bæði heima og að heiman. Já hann frændi ykkar á Ljósstöðum var ykkur nú góður og okkur þótti líka mjög vænt um hann. Oft sat hann nú með ykkur Jóa á hnjánum og nærvera hans var nú fastur liður hjá okkur ekki bara um jól heldur oft um helgar. Þó hann ætti ekkert barn sjálfur, þá voru mörg börn sem hændust að honum, enda var hann mjög barngóður. Hafðu það gott heillin.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.12.2008 kl. 13:21

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hæ! Svo er það í minni minningu þannig að á jólunum koma Óli svo oft með Frænda. Vá hvað þetta var yndislegur karl hann Frændi, og gaman að rifja upp sögur af honum..... maður saknar hans og þegar maður rifjar upp þá finnst mér eins og ég finni neftóbakslyktina enn.... Farið vel með ykkur. kv úr Drekagilinu

Páll Jóhannesson, 19.12.2008 kl. 14:36

4 Smámynd: Margith Eysturtún

Til hamingju með fríið , svo er það ég sem þar að vinna þessi jól . ( nema 24 des. ) Alltaf gaman að rifja upp úr barneskunni, finnst mér eins og lifið var eitthvað sorglaust á þeim tíma . Ekki eins og núnahehe . Er að fara í vinnu snemma á morgun svo ég hætti þessu í bili .

Jólakveðjur úr Danmörk 

Margith Eysturtún, 20.12.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 36310

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband