Þvílík fegurð

Góðan daginn og velkomin á fæturSleeping

Sit hérna við tölvuna í vinnunni og bíð eftir að næturvakin mín endi svo ég geti farið heim að sofaSleeping Hef eytt megninu af vaktinni við að læra og lesa voða spennandi haTounge Skrapp í borg óttans í dag og þegar við vorum að keyra á Reykjanesbrautinni þá blasti við mér þvílík fegurðGrin Snjór yfir öllu himinin heiður og tær blár og svo skein sólin svo skært þegar hún speglaðist í snjónum voru eins og demantar sem glitruðu á allsstaðar ég hreinlega varð orðlausGetLost Engin myndavél til að fanga augnablikið og reyndar er hún ekki sú fullkomnasta en kannski hefði það dugaðBlush En svona getur okkar fallega land skartað sínu fegursta og þá er eins og lífið stoppi og ekkert annað kemst að nema hvað þetta eru mikil forréttindi að fá að búa hér sama svo sem hvar á landinu sem erGrin Hef reyndar í geng um árin heillast meira og meira að mínum heimaslóðum í dag hérna suður með sjó og finnst það alveg yndislegt vildi held ég ekki hafa misst að þessu að fá að búa hérGrin Viðurkenni það að fyrir mörgum árum síðan þegar ég kom hingað til að búa sá ég ekki mikið sem mér fannst fallegt fyrr en ég uppgötvaði að ef maður vill sjá eitthvað fallegt þá er bara að horfa í kringum sig án fordóma enda eru allir staðir fallegir og hafa sina sögu að segja. Jæja en sumum kann að finnast þetta væmið og það er þá bara allt í lagi með þaðGrin Læt nú þessari pælingu minni lokið í bili og kveð HJ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margith Eysturtún

Ef mann horfir á alt með opið hjarta, verður lífið fallegri 

Kveðjur frá lærdómsþræli 

Margith Eysturtún, 3.2.2009 kl. 14:19

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Það felst mikil víska í orðum Margith. kv að norðan Palli

Páll Jóhannesson, 3.2.2009 kl. 22:45

3 identicon

hæ, það er ekkert væmið að tjá sig af einlægni, gat eiginlega séð hvað þú varst að lýsa, og, jú allir staðir hafa sinn sjarma,

kveðja að norðan

helga (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 00:06

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Sammála ykkur öllum. Fegurðin er allstaðar bara ef við viljum sjá hana. Horfum, skoðum og sjáum allan þann breytileika sem landið okkar og þau lönd sem við heimsækjum hafa mikið að bjóða. Kv.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 4.2.2009 kl. 14:15

5 Smámynd: Dagbjört  Pálsdóttir

Knús & kossar til ykkar allra

Dagbjört Pálsdóttir, 5.2.2009 kl. 11:15

6 identicon

já Hrönn, eins og Margith segir horfa með opnu hjarta og þá er alltaf hægt að sjá fallegt. Líka á Suðurnesjunum

Björg (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hrönn Jóhannesdóttir

Höfundur

Hrönn Jóhannesdóttir
Hrönn Jóhannesdóttir
Bý á Suðurnesjum. Fædd og uppalin á Akureyri. Móðir eiginkona og amma. Er félagsliði og vinn á sambýli fatlaðra. Áhugamál margvísleg allt á milli himins og jarðar.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ivan og James
  • Birna Emilía og James á áramótunum
  • Hrafnhildur og Kristín um áramót
  • James á áramótum á Íslandi
  • Ivan á áramótunum

Fólk

Litlu krílin

Börnin

Vinir og kunningjar

Hinir og þessir blogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 36310

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband